Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 505/2024

Nr. 505/2024 8. apríl 2024

REGLUGERÐ
um (3.) breytingu á reglugerð nr. 232/2023 um gildistöku framkvæmdarreglna framkvæmdastjórnarinnar um skráningar á landfræðilegum merkingum fyrir brennda drykki skv. 2. mgr. 30. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787.

1. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætast við þrír nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/380 frá 28. febrúar 2022 um skráningu landfræðilegrar merkingar fyrir brenndan drykk skv. 2. mgr. 30. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 („Homokháti őszibarack pálinka“). Reglu­gerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 152/2023, frá 13. júní 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 63, frá 7. september 2023, bls. 122.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/248 frá 15. febrúar 2022 um skráningu landfræðilegrar merkingar fyrir brenndan drykk skv. 2. mgr. 30. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 („Pregler“/„Osttiroler Pregler“). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 152/2023, frá 13. júní 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 63, frá 7. september 2023, bls. 120.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1653 frá 17. ágúst 2022 um skráningu landfræðilegrar merkingar fyrir brenndan drykk skv. 2. mgr. 30. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 („Borzag pálinka“). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 22/2024, frá 2. febrúar 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25, frá 21. mars 2024, bls. 383.

 

2. gr.

Tollyfirvöld hafa eftirlit með því að ákvæðum reglugerðar þessarar sé framfylgt í samræmi við 132. gr. tollalaga nr. 88/2005.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar hafa eftir­lit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, sbr. 29. gr. laga nr. 130/2014 um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, land­svæðis eða hefðbundinnar sérstöðu.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 40., sbr. 27. gr. laga um vernd afurðarheita sem vísa til upp­runa, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu nr. 130/2014 og 31. gr. a laga um matvæli nr. 93/1995 og öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 8. apríl 2024.

 

F. h. r.

Benedikt Árnason.

Svava Pétursdóttir.


B deild - Útgáfud.: 24. apríl 2024