1. gr.
Eftirfarandi viðaukar við MARPOL-samninginn öðlast gildi hér á landi með reglugerð nr. 586/2017 um innleiðingu viðauka við alþjóðasamning um varnir gegn mengun frá skipum, 1973, með breytingum samkvæmt bókun 1978 (MARPOL-samninginn), sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:
- Viðauki I um varnir gegn olíumengun frá skipum.
- Viðauki II um varnir gegn mengun vegna eitraðra efna í fljótandi formi sem flutt eru í geymum skipa.
- Viðauki III um varnir gegn mengun af völdum skaðlegra efna sem flutt eru í pökkuðu formi.
- Viðauki V um varnir gegn sorpmengun frá skipum.
Viðaukar I, II, III og V við MARPOL-samninginn og breytingar við þá eru birtir á ensku í fylgiskjölum 1, 2, 3 og 4 með auglýsingu þessari.
2. gr.
Auglýsing þessi er sett með stoð í a-lið, g-lið, j-lið og s-lið 6. gr. laga nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda, sbr. heimild í 2. mgr. 4. gr., sbr. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 15/2005 um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað og öðlast þegar gildi.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 6. júní 2017.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Helga Jónsdóttir.
Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|