Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 843/2024

Nr. 843/2024 2. júlí 2024

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um fjárhagsaðstoð við sjálfviljuga heimför á grundvelli laga um útlendinga, nr. 607/2023.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir orðunum „til baka“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: dregið kæru sína til baka á kærustigi.
  2. Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
      Útlendingur á ekki rétt á aðstoð við sjálfviljuga heimför á meðan umsækjandi er með dvalarleyfisumsókn eða umsókn um ríkisborgararétt í vinnslu hjá Útlendingastofnun.

 

2. gr.

Á eftir 3. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur ný málsgrein, svohljóðandi:

Með greiðslu viðbótarstyrks er átt við styrk sem greiðist til viðbótar við enduraðlögunarstyrk og tekur mið af því á hvaða stigi málsmeðferðar ósk um aðstoð við heimför er borin fram. Réttur til greiðslu viðbótarstyrks fellur niður eftir að frestur til heimfarar er liðinn.

 

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað töflu í 1. mgr. kemur ný tafla, svohljóðandi:
Ríki   Ferða-styrkur Endur­aðlögunar­styrkur Viðbótarstyrkur,

ef sótt er um áður en niðurstaða liggur fyrir á kærustigi, allt að
Viðbótarstyrkur,

ef sótt er um eftir að niðurstaða liggur fyrir á kærustigi og áður en frestur til heimfarar er liðinn, allt að
A   Fullorðinn 200 evrur 2.000 evrur 2.000 evrur 500 evrur
Barn 100 evrur 1.000 evrur 1.000 evrur 500 evrur
Fylgdarlaust barn 200 evrur 2.000 evrur 1.000 evrur 500 evrur
B   Fullorðinn 200 evrur 1.000 evrur 1.500 evrur 500 evrur
Barn 100 evrur 500 evrur 1.000 evrur 500 evrur
Fylgdarlaust barn 200 evrur 2.000 evrur 1.000 evrur 500 evrur 
C

Undanþegin skyldu til að hafa vegabréfs-áritun

 

Fullorðinn X 500 evrur X X
Barn X 500 evrur X X
Fylgdarlaust barn

X

500 evrur X X
  1. Í stað orðanna „A eða B“ í 2. mgr. kemur: A, B eða C. 
  2. Á eftir orðunum „í formi reiðufjár“ í 3. málsl. 4. mgr. kemur: og í öðrum gjaldmiðli en evrum.

 

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:

  1. 1. mgr. orðast svo: Útlendingur sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og er staddur hér á landi við gildistöku reglugerðarinnar og fellur undir flokk C í töflu 3. gr. skal fá greidda styrki samkvæmt flokki B.
  2. Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
      Íslenskum stjórnvöldum er heimilt að hafa milligöngu um greiðslu enduraðlögunarstyrkja, sem eru á vegum alþjóðastofnana, þótt um sé að ræða umsækjanda sem á ekki rétt á styrk skv. 1. gr. Útlendingur getur þó ekki fengið enduraðlögunarstyrk á vegum alþjóðastofnana samhliða enduraðlögunarstyrk á vegum íslenskra stjórnvalda.

 

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 8. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Dómsmálaráðuneytinu, 2. júlí 2024.

 

Guðrún Hafsteinsdóttir.

Haukur Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 12. júlí 2024