Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1153/2020

Nr. 1153/2020 12. nóvember 2020

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 729/2018, um röraverkpalla.

1. gr.

Við 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar bætist: sbr. þó 1. mgr. 12. gr. og b-lið 1. mgr. 17. gr.

 

2. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Þrátt fyrir II. kafla sem og 1. mgr. 12. gr. er heimilt að nota röraverkpalla sem teknir voru í notkun hér á landi fyrir 24. júlí 2018 fram til 1. janúar 2028. Að öðru leyti gildir reglugerðin um upp­setningu og notkun röraverkpalla hér á landi.

 

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 34., 38., 40., og 47. gr. laga nr. 46/1980, um aðbúnað hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum, að fenginni umsögn stjórnar Vinnueftirlits ríkisins, öðlast þegar gildi.

 

Félagsmálaráðuneytinu, 12. nóvember 2020.

 

Ásmundur Einar Daðason.

Bjarnheiður Gautadóttir.


B deild - Útgáfud.: 26. nóvember 2020