Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1383/2024

Nr. 1383/2024 15. nóvember 2024

GJALDSKRÁ
fyrir meðhöndlun úrgangs í Reykjavíkurborg.

1. gr.

Innheimta skal gjald fyrir meðhöndlun úrgangs í Reykjavíkurborg svo sem nánar greinir í gjald­skrá þessari.

 

2. gr.

Gjald fyrir blandaðan heimilisúrgang:

Gjald­flokkur nr. Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
A.1 120 l tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl   46.700
A.2 120 l tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl   56.700
A.3 240 l tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl   64.800
A.4 240 l tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl   74.800
A.5 360 l tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl   97.200
A.6 360 l tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 107.200
A.7 660 l ker, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 178.200
A.8 660 l ker, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 205.700
     
    kr./losun
A.9 3 m³ gámur   20.700
A.10 4 m³ gámur   24.400
A.11 5 m³ gámur   28.000

Gjald fyrir flokkaðan heimilisúrgang, pappírsefni:

Gjald­flokkur
nr.
Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
B.1 240 l tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl   7.600
B.2 240 l tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 10.800
B.3 360 l tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 11.400
B.4 360 l tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 14.600
B.5 660 l ker, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 20.900
B.6 660 l ker, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 29.700
     
    kr./losun
B.7 3 m³ gámur   4.400
B.8 4 m³ gámur   4.500
B.9 5 m³ gámur   4.600

Gjald fyrir flokkaðan heimilisúrgang, plastefni:

Gjald­flokkur
nr.
Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
C.1 240 l tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl   5.400
C.2 240 l tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl   8.600
C.3 360 l tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl   8.100
C.4 360 l tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 11.300
C.5 660 l ker, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 14.850
C.6 660 l ker, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 23.650
     
    kr./losun
C.7 3 m³ gámur   1.000
C.8 4 m³ gámur   1.000
C.9 5 m³ gámur   1.000

Gjald fyrir flokkaðan heimilisúrgang, matarleifar:

Gjald­flokkur
nr.
Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
D.1 140 l tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 18.100
D.2 140 l tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 28.100
     
    kr./losun
D.3 3 m³ gámur   6.500

Gjald fyrir tvískiptar tunnur:

Gjald­flokkur
nr.
Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
E.1 240 l tvískipt tunna fyrir blandaðan heimilisúrgang (60%) og matar­leifar (40%) sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 49.500
E.2 240 l tvískipt tunna fyrir blandaðan heimilisúrgang (60%) og matar­leifar (40%) sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 59.500
E.3 240 l tvískipt tunna fyrir pappírsefni (60%) og plast (40%) sótt minna en 15 metra frá hirðubíl   9.900
E.4 240 l tvískipt tunna fyrir pappírsefni (60%) og plast (40%) sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 13.100

Gjaldi fyrir tunnur og ker er ætlað að standa undir kostnaði við ílát, hirðu og förgun eða endur­vinnslu úrgangs. Gjaldi fyrir gáma er ætlað að standa undir kostnaði við hirðu og förgun eða endur­vinnslu.

Aðrir gjaldaliðir.

Merktir pokar fyrir tilfallandi, umfram blandaðan úrgang: 2.428 kr./stk.

Gjald fyrir aukalosun: 8.916 kr./ferð, auk 3.120 kr./ílát sem losað er.

Gjald fyrir aukalosun djúpgáma: 13.166 kr./ferð, auk losunargjalds djúpgáma hér að framan.

Gjald vegna reksturs grenndar- og endurvinnslustöðva: 21.700 kr./íbúð. Gjaldi vegna grenndar- og endurvinnslustöðva er ætlað að standa undir kostnaðarhlutdeild Reykjavíkurborgar í rekstri grenndar- og endurvinnslustöðva SORPU bs.

Umsýslugjald vegna breyttrar þjónustu, akstur og skráning íláta, er 4.140 kr. fyrir hvert sinn sem óskað er breytinga.

 

3. gr.

Gjalddagi gjalda skv. 2. gr. er útgáfudagur reiknings og eindagi 30 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga, séu gjöld ekki greidd á eindaga.

 

4. gr.

Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi. Innheimtudeild Reykjavíkurborgar annast innheimtu gjalda samkvæmt þessari gjaldskrá.

Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af borgarráði Reykjavíkurborgar með heimild í 5. mgr. 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og 2. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og öðlast gildi 1. janúar 2025. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1280/2023.

 

Borgarstjórinn í Reykjavík, 15. nóvember 2024.

 

Einar Þorsteinsson.


B deild - Útgáfud.: 3. desember 2024