Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 483/2011

Nr. 483/2011 26. apríl 2011
SAMÞYKKT
um breytingu á samþykkt nr. 541/2000 um sorphirðu sveitarfélaga á Norðurlandi eystra.

1. gr.

Heiti samþykktarinnar verður: Samþykkt um sorphirðu eftirtalinna sveitarfélaga á Norðurlandi eystra: Dalvíkurbyggðar, Hörgárbyggðar, Eyjafjarðarsveitar, Svalbarðs­strandar­hrepps, Grýtubakkahrepps, Þingeyjarsveitar, Skútustaðahrepps, Norðurþings, Tjörneshrepps og Svalbarðshrepps.

2. gr.

Samþykkt þessi staðfestist hér með samkvæmt 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og 5. mgr. 4. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs til að öðlast þegar gildi.

Umhverfisráðuneytinu, 26. apríl 2011.

F. h. r.

Sigurbjörg Sæmundsdóttir.

Íris Bjargmundsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 12. maí 2011