1. gr.
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar innheimtir gjald fyrir fráveitu í Dalvíkurbyggð skv. gjaldskrá þessari og samþykkt um fráveitu og rotþrær í Dalvíkurbyggð nr. 1490/2023.
2. gr
Fráveitugjald skal greitt af öllum mannvirkjum sem tengd eru fráveitukerfum sveitarfélagsins og skal það vera eftirfarandi:
- Fráveitugjald íbúðarhúsnæðis verði fast gjald 20.579 kr. pr. íbúð og 429 kr. pr. fermetra húss.
- Fráveitugjald af öðru húsnæði en íbúðum verði fast gjald 47.418 kr. pr. eign og 429 kr. pr. fermetra húss.
- Álagning skv. a- og b-lið skal þó aldrei vera hærri en 0,47% eða lægri en 0,25% af fasteignamati allra húsa og lóða samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001.
3. gr.
Sveitarfélagið annast tæmingu rotþróa í eigu fasteignaeigenda í Dalvíkurbyggð og innheimtir sérstakt rotþróargjald til að standa straum af kostnaði við tæmingu, urðun seyru og umsjón með verkinu, sbr. 8. gr. samþykktar um fráveitur og rotþrær í Dalvíkurbyggð nr. 1490/2023.
Árlegt rotþróargjald sem lagt er á hverja íbúð, þar sem tæming á sér stað þriðja hvert ár, er 15.954 kr. Að auki er greitt árlegt fast gjald 18.868 kr. á hverja íbúð til að standa straum af kostnaði vegna niðursetningar á rotþróm sem settar voru niður fyrir árið 2024. Af öðru húsnæði sem fjallað er um í b-lið 2. gr. greiðast sambærileg rotþróargjöld þ.e. fast gjald og rotþróargjald.
4. gr.
Með vísan til 14. gr. samþykktar um fráveitur og rotþrær í Dalvíkurbyggð nr. 1490/2023, er lagt á tengigjald fráveitu sem er 15% af útreiknuðu gatnagerðargjaldi eins og það er á hverjum tíma. Það innheimtist sérstaklega og nýtur sama lögveðsréttar og gatnagerðargjald.
5. gr.
Gjalddagar fráveitu- og rotþróargjalds skulu vera þeir sömu og sveitarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts. Skráður eigandi fasteignar ber ábyrgð á greiðslu fráveitugjalds.
6. gr.
Gjöld skv. gjaldskrá þessari má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Njóta gjöldin lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.
7. gr.
Gjaldskrá þessi sem samþykkt var af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar, staðfestist hér með skv. 15. gr. laga nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitu og skv. 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, til þess að gilda við álagningu gjalda á árinu 2025. Jafnframt fellur brott gjaldskrá nr. 1593/2023.
Samþykkt í veitu- og hafnaráði Dalvíkurbyggðar 23. október 2024.
Samþykkt í byggðarráði Dalvíkurbyggðar 15. nóvember 2024.
Samþykkt í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar 19. nóvember 2024.
Gjaldskrá þessi öðlast þegar gildi.
Dalvíkurbyggð, 21. nóvember 2024.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri.
|