1. gr.
Frá og með 21. júlí 2016 til og með 31. júlí 2016 eru strandveiðar bannaðar á svæði C, Þingeyjarsveit til Djúpavogshrepps, sbr. 2. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 337/2016, um strandveiðar fiskveiðiárið 2015/2016.
2. gr.
Auglýsing þessi er gefin út með stoð í 2. mgr. 6. gr. a laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, sbr. a. lið 2. gr. laga nr. 82/2013, um breytingu á þeim lögum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.
Fiskistofu, 20. júlí 2016.
Þorsteinn Hilmarsson sviðsstjóri.
Gunnar Hallgrímur Sigurðsson.
|