Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 316/2025

Nr. 316/2025 13. mars 2025

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 153/2010 um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglnanna:

  1. Merkingin „I.“ fellur brott ásamt núverandi fyrirsögn liðar I.
  2. Í stað orðanna „fyrri hluta meistaranáms“ í 1. mgr. kemur orðið: meistaranámi.
  3. Lokamálsliður 3. mgr. fellur brott.
  4. Orðin „skipuð þremur kennurum deildarinnar“ í 5. mgr. falla brott.

 

2. gr.

Í stað orðanna „í íslensku“ í 2. tölulið í 2. mgr. 3. gr. koma orðin: úr háskólanámi, hafi umsækj­andi lokið 30 ECTS eða meira í viðurkenndu háskólanámi.

 

3. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt að fenginni tillögu frá félags­vísindasviði, eru settar samkvæmt heimild í 3. og 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast þegar gildi.

 

Háskóla Íslands, 13. mars 2025.

 

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 27. mars 2025