1. gr.
Við 6. gr. reglnanna bætist ný málsgrein sem verður 1. mgr. ákvæðisins og orðast hún svo:
Í nýbyggingum og við meiriháttar endurbætur á eldra húsnæði eða innanhússlögnum þeirra skal innanhússlögn sem lögð er vera hæf til að bera háhraða gagnaflutningsþjónustu.
2. gr.
Ákvæði 7. gr. reglnanna verður svohljóðandi:
Í hverri byggingu skal vera inntak fyrir fjarskiptastrengi. Ef bygging er tengd þráðlausum samböndum skal gengið frá aðgangi að endabúnaði þeirra á sama hátt og um inntak væri að ræða. Frágangur á inntaki fjarskiptastrengja er á ábyrgð húseiganda.
Í fjölbýlishúsum skal staðsetja inntak fjarskiptastrengja í lokuðu rými í sameign, á traustum vegg sem að jafnaði skal vera burðarveggur eða einangraður útveggur. Í inntaki má ekki tengja aðra strengi en fjarskiptastrengi. Sé raflögn að inntakinu, svo að hægt sé að koma fyrir í því virkum fjarskiptarásum, skal það jarðtengt. Inntak skal einnig vera jarðtengt séu heimtaugar og innanhússlagnir úr rafleiðandi efnum.
Í fjarskiptainntaki skal ávallt setja upp tengilista til að tengja strengenda heimtaugar við innanhússfjarskiptalögn. Heimilt er að splæsitengja heimtaug við innanhússfjarskiptalögn í fjarskiptainntaki. Sé splæsitengt í fjölbýlishúsi eða einingaskiptu atvinnuhúsnæði skal leggja a.m.k. einn aukaþráð innanhússfjarskiptalagnar frá inntaki til hverrar íbúðar eða einingar og skal lausum aukaþráðum innanhússfjarskiptalagnar komið fyrir í tengilista við fjarskiptainntak.
Sé laus þráður innanhússlagnar til viðkomandi notanda fyrir hendi í fjarskiptainntaki skal fjarskiptafyrirtæki tengja heimtaug við hann í stað þess að aftengja tengingu annars fjarskiptafyrirtækis sem fyrir er. Óheimilt er að splæsitengja alla þræði hverrar íbúðar við heimtaug.
Sé enginn laus þráður í innanhússlögn þar sem splæsitenging hefur verið notuð er húseiganda heimilt að láta aftengja innanhússlögn sína frá inntaki þess fjarskiptafyrirtækis sem fyrir er. Fjarskiptafyrirtæki sem aftengir skal tilkynna, með rekjanlegum hætti, því fjarskiptafyrirtæki sem fyrir var um aftenginguna eigi síðar en innan 10 virkra daga eftir að hún var framkvæmd.
Inntök fjarskiptastrengja skulu vera í samræmi við viðurkennda og viðeigandi ÍST-staðla og í samræmi við fjölda íbúða eða fjölda afmarkaðra athafnasvæða í atvinnubyggingum.
3. gr.
Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 60. gr. laga um fjarskipti nr. 81/2003 og öðlast gildi þann 1. júlí 2018.
Póst- og fjarskiptastofnun, 18. apríl 2018.
Hrafnkell V. Gíslason.
Björn Geirsson.
|