Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1675/2024

Nr. 1675/2024 13. desember 2024

REGLUR
um skattmat vegna tekna af landbúnaði árið 2025.

Eftirfarandi reglur um skattmat tekna af landbúnaði á árinu 2025 eru settar skv. 118. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. og 2. tölul. B-liðar 17. gr. reglugerðar nr. 245/1963, um tekjuskatt og eignarskatt. Um er að ræða mat á tekjum í búrekstri, hvort sem um er að ræða einstaklingsrekstur eða rekstur lögaðila sem færa ber á rekstrarreikning fyrir tekjuárið 2025.

Búsafurðir til heimanota og önnur endurgjaldslaus afhending þeirra til eigenda, starfsmanna og skylduliðs þeirra skal telja til rekstrartekna. Tekur skattmatið m.a. til búfjárafurða, jarðargróða, afraksturs af hvers konar hlunnindum, afurða gróðurstöðva, fuglabúa o.s.frv. og sjávarafla og afla eldisstöðva. Séu afurðir, sem teknar eru eða afhentar til heimanota, ekki tilgreindar hér á eftir skal meta þær á sama verði og fyrir þær fæst við sölu til óskylds aðila. Séu afurðir þessar afhentar á lægra verði en í skattmatinu greinir skal mismunur á því verði og matsverðinu talinn til rekstrartekna hjá búinu. Sláturkostnaður vegna búsafurða til heimanota heimilast ekki til frádráttar rekstrartekjum.

Skattmat á heimaafnotum búsafurða o.fl. vegna tekjuársins 2025 er sem hér segir:

Tegund Krónur Eining
Mjólk 136 pr. lítra
Egg 644 pr. kg
Kartöflur 188 pr. kg
Rófur 215 pr. kg
Gulrætur 587 pr. kg
Lambakjöt 854 pr. kg
Kjöt af veturgömlu fé 263 pr. kg
Annað kjöt af sauðfé 182 pr. kg
Ungnautakjöt 863 pr. kg
Annað kjöt af nautgripum 499 pr. kg
Folaldakjöt 380 pr. kg
Annað kjöt af hrossum 158 pr. kg
Grísakjöt 640 pr. kg
Annað svínakjöt 324 pr. kg
Kjúklingar 540 pr. kg
Annað fuglakjöt 886 pr. kg
Lax og silungur 924 pr. kg
Annar fiskur 427 pr. kg

 

Reykjavík, 13. desember 2024.

 

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2024