Þann 16. mars 2016 samþykkti Alþingi tillögu að þingsályktun um landsskipulagsstefnu 2015-2026. Í samræmi við 2. málsl. 4. tölul. bráðabirgðaákvæðis skipulagslaga nr. 123/2010 fellir ráðherra úr gildi svæðisskipulag miðhálendis Íslands 2015 frá 10. maí 1999. Auglýsing þessi um niðurfellingu öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 7. apríl 2016.
Sigrún Magnúsdóttir.
Sigríður Auður Arnardóttir.
|