Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 878/2021

Nr. 878/2021 23. júlí 2021

REGLUGERÐ
um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

1. gr.

Markmið.

Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, hefur heilbrigðisráðherra ákveðið, að feng­inni tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við ríkisstjórnina, að setja á tímabundna takmörkun á samkomum eftir því sem nánar greinir í reglugerð þessari.

Markmið takmörkunarinnar er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins.

 

2. gr.

Gildissvið.

Takmörkun á samkomum tekur gildi 25. júlí 2021 og gildir til og með 13. ágúst 2021.

Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkuninni eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar.

Takmörkun á samkomum tekur til landsins alls.

Reglugerðin tekur hvorki til alþjóðaflugvalla og -hafna né til loft­fara, skipa í millilanda­ferðum og skipa sem stunda fiskveiðar.

Reglugerðin tekur ekki til heilbrigðisstofnana, hjúkrunarheimila og annarra sambærilegra stofn­ana, en þær skulu setja sér reglur um sóttvarnir, sbr. 6. gr.

Ákvæði 3. og 4. gr. reglugerðar þessarar um fjöldatakmörkun og nálægðartakmörkun taka ekki til barna sem fædd eru 2016 og síðar. Grímuskylda skv. 2. mgr. 4. gr. á ekki við börn sem fædd eru 2006 og síðar.

Reglugerð þessi tekur til skólastarfs eftir því sem við á.

 

3. gr.

Fjöldatakmörkun.

Í takmörkun á samkomum felst að fjöldasamkomur eru óheimilar á gildistíma þessarar reglu­gerðar. Með fjöldasamkomum er átt við það þegar fleiri en 200 einstaklingar koma saman, hvort sem er í opinberum rýmum eða einkarýmum, innan- og utandyra. Er þá meðal annars vísað til:

  1. Ráðstefna, málþinga, útifunda o.þ.h.
  2. Kennslu, fyrirlestra og prófahalds.
  3. Skemmtana, svo sem standandi eða sitjandi viðburða og einkasamkvæma.
  4. Athafna trú- og lífsskoðunarfélaga.
  5. Annarra sambærilegra viðburða með fleiri en 200 einstaklingum.

Enn fremur skal tryggt á öllum vinnustöðum og í allri starfsemi að ekki séu á sama tíma fleiri en 200 einstaklingar inni í sama rými. Tryggja skal að ekki sé samgangur milli rýma.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er söfnum heimilt að taka á móti 75% af leyfilegum hámarksfjölda, þó eigi fleiri en 200 manns í hverju rými.

 

4. gr.

Almenn nálægðartakmörkun og grímunotkun.

Á samkomum, öllum vinnustöðum, verslunum, söfnum og í allri annarri starfsemi, meðal annars þeirri sem talin er upp í 3. gr., hvort sem er innan- eða utandyra, skal tryggja að hægt sé að hafa a.m.k. 1 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.

Andlitsgrímur skal nota þar sem húsnæði er illa loftræst eða ekki er unnt að tryggja nálægðartakmörkun skv. 1. mgr., svo sem í heilbrigðisþjónustu, verslunum, söfnum, innanlandsflugi og -ferjum, almenningssamgöngum, leigu­bifreiðum og hópbifreiðum, í verklegu ökunámi og flugnámi, starf­semi hárgreiðslustofa, snyrtistofa, nuddstofa, húðflúrstofa, hundasnyrtistofa, sólbaðsstofa og annarri sambærilegri starfsemi.

Andlitsgríma skal hylja nef og munn. Andlitsgrímur sem notaðar eru utan heilbrigðisþjónustu skulu uppfylla kröfur sem fram koma í vinnustofusamþykkt evrópsku staðla­samtakanna (CEN). Sóttvarnalæknir getur sett nánari leiðbeiningar um kröfur til andlitsgríma sam­kvæmt ákvæði þessu. Í þjónustu sem krefst snertingar skal gætt að handþvotti og sótthreinsun handa, auk þess skal sótthreinsa snertifleti milli viðskiptavina.

Undanþegnir grímuskyldu skv. 2. mgr. eru þeir einstaklingar sem hafa ekki skilning eða þroska til að nota andlitsgrímu rétt eða geta það ekki af öðrum ástæðum, svo sem vegna heilsufars.

 

5. gr.

Takmarkanir á starfsemi vegna sérstakrar smithættu.

Veitingastaðir þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar, svo sem veitingahús, kaffihús, krár og skemmtistaðir, spilasalir og spilakassar skulu ekki hafa opið lengur en til kl. 23.00 alla daga vikunnar. Í því felst að ekki er heimilt að hleypa inn nýjum viðskiptavinum eftir kl. 23.00 og skulu þeir hafa yfirgefið staðinn eigi síðar en kl. 00.00. Gestir mega að hámarki vera 100 í rými og skulu vínveitingar bornar fram til sitjandi gesta. Gestir skulu skráðir með nafni, kennitölu og símanúmeri. Skráin skal varðveitt í tvær vikur og eytt að þeim tíma liðnum.

Ekki er heimilt að veita tímabundið leyfi fyrir skemmtunum, svo sem tónleikum, dansleikjum, brennum eða öðrum viðburðum sem ætla má að dragi að sér hóp fólks eftir kl. 23.00.

Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. um fjöldatakmörkun má gestafjöldi á heilsu- og líkamsræktarstöðvum og sund- og baðstöðum aldrei vera meiri en 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. Sé hámarksfjöldi gesta ekki skráður í starfsleyfi skal miða gestafjölda við þann fjölda sem fataskiptirými gerir ráð fyrir. Sótthreinsa skal tæki og áhöld milli notenda. Sóttvarnalæknir gefur út nánari leiðbeiningar um heilsu- og líkamsræktarstöðvar og sund- og baðstaði vegna COVID-19. Ákvæði þetta tekur einnig til baðstaða í náttúrunni eftir því sem við á.

Íþróttaæfingar og -keppnir barna og fullorðinna, innan- og utandyra, með og án snertingar, eru heimilar. Þrátt fyrir 1. mgr. 3. gr. er hámarksfjöldi þeirra sem fæddir eru 2005 og fyrr 100 manns í rými. Búningsaðstaða skal þrifin reglulega og snertifletir sótthreinsaðir milli hópa. Sameiginleg áhöld skulu sótthreinsuð a.m.k. tvisvar á dag, loftræsting skal vera í lagi og loftað reglulega út yfir daginn. Sama gildir um sitjandi borðleiki, svo sem skák, bridds og bingó.

Hámarksfjöldi áhorfenda á íþróttaviðburðum er 200 í rými og þar er grímuskylda. Skylt er að skrá áhorfendur í númeruð sæti og halda skrá yfir gesti sem varðveita skal í tvær vikur. Skránni skal eytt að þeim tíma liðnum. Óheimilt er að selja veitingar á íþróttaviðburðum.

Íþrótta- og ólympíusamband Íslands setur sérsamböndum reglur, svo sem um einstaklingsbundnar sóttvarnir og sótthreinsun búnaðar, um framkvæmd æfinga og keppna í sínum greinum í samvinnu við sóttvarnalækni. Í íþróttum sem ekki tilheyra Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands skal setja leiðbeiningar eða fylgja sömu leiðbeiningum og gilda um sambærilegar íþróttir innan sambandsins.

Sviðslistir, kórastarf, bíósýningar sem og aðrir menningarviðburðir eru heimilir með allt að 100 manns á sviði, þ.e. æfingar og sýningar. Gætt skal að handhreinsun, sótthreinsun sameiginlegs búnaðar a.m.k. tvisvar á dag og tryggja skal að loftræsting sé í lagi. Heimilt er að taka á móti allt að 200 sitjandi gestum í hverju rými og skulu þeir nota grímu nema þegar neytt er drykkjar- eða neysluvöru. Börn fædd 2006 og síðar skulu talin með fjölda gesta í rými. Heimilt er að hafa hlé en veitingasala í hléum er óheimil. Allir gestir skulu skráðir í númeruð sæti með nafni, kennitölu og símanúmeri. Skal varðveita skrána í tvær vikur og eyða henni að þeim tíma liðnum.

Þrátt fyrir 1. mgr. 3. gr. er tjaldsvæðum og hjólhýsasvæðum heimilt að taka við gestum í samræmi leiðbeiningar sóttvarnalæknis og Ferðamálastofu um sóttvarnaráðstafanir á tjaldsvæðum og hjólhýsasvæðum.

 

6. gr.

Hjúkrunarheimili og aðrar heilbrigðisstofnanir.

Heilbrigðisstofnanir, hjúkrunarheimili og aðrar sambærilegar stofnanir eru almennt undan­þegnar ákvæðum reglugerðarinnar en skulu setja sér reglur um starfsemi sína, svo sem um heim­sóknir utanaðkomandi að heimilunum og stofnununum, nálægðartakmarkanir, hámarksfjölda í rými og hlífðarbúnað.

 

7. gr.

Þrif og sótthreinsun almenningsrýma.

Í öllum verslunum, opinberum byggingum og á öðrum stöðum innandyra þar sem umgangur fólks er nokkur skal þrífa eins oft og unnt er, sérstaklega algenga snertifleti. Auk þess skal minna almenning og starfsmenn á einstaklingsbundnar sóttvarnir, svo sem munnlega, með merkingum eða skiltum. Þá skal tryggja góða loftræstingu þar sem umgangur fólks er nokkur og lofta reglulega út.

Við alla innganga skal tryggja aðgang að sótthreinsandi vökva fyrir hendur og eins víða um rými og talin er þörf á, meðal annars við afgreiðslukassa og innkaupakerrur í verslunum.

 

8. gr.

Undanþágur.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun á samkomum til verndar lífi eða heilsu manna eða dýra eða vegna samfélagslega ómissandi innviða sem mega ekki stöðvast, svo sem á sviði raforku, fjarskipta, samgangna, sorphirðu, heil­brigðis­starfsemi, félagsþjónustu, löggæslu, sjúkra­flutninga, hjálparliðs almannavarna eða slökkvi­liða.

Hið sama á við vegna kerfislega og efnahagslega mikilvægrar starfsemi, svo sem til að tryggja fæðuöryggi, dreifingu nauðsynjavara eða efnahagslegt öryggi ríkisins með útflutningi. Enn fremur getur ráðherra veitt undanþágu vegna starfa Alþingis, dómstóla og stjórnsýslu.

Þá getur ráðherra veitt undanþágu frá takmörkunum þegar sérstaklega stendur á, enda sé gætt fyllstu sóttvarnaráðstafana að öðru leyti. Við veitingu undanþága skal leitast við að grípa til annarra aðgerða þannig að gætt sé að smit­vörnum eins og kostur er.

Ráðherra getur óskað eftir umsögnum frá sóttvarna­lækni um beiðnir um undanþágu.

 

9. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, tekur gildi eftir því sem mælt er fyrir um í 2. gr.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 23. júlí 2021.

 

F. h. r.

Ásthildur Knútsdóttir.

Arnar Bergþórsson.


B deild - Útgáfud.: 23. júlí 2021