1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. málsl. 3. gr. reglugerðarinnar:
- Á eftir orðunum „vefsvæði sínu“ kemur: og miðlægu vefsvæði um ríkisaðstoð.
- Í stað „60 millj. kr.“ kemur: 500.000 evrur.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. mgr. 1. tölul. B-liðar 1. mgr. 30. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, og öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 9. apríl 2019.
F. h. r.
Helga Jónsdóttir.
Steinar Örn Steinarsson.
|