Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1245/2024

Nr. 1245/2024 3. október 2024

GJALDSKRÁ
Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar.

I. KAFLI

Almennt.

1. gr.

Verkefni Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar ákvarðast af lögum um brunavarnir nr. 75/2000 og reglu­gerðum settum samkvæmt þeim.

 

2. gr.

Slökkvilið Ísafjarðarbæjar innheimtir ferða- og uppihaldskostnað í samræmi við reglur ferða­kostn­aðarnefndar fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

 

3. gr.

Slökkviliðsstjóra er heimilt að fella niður gjald vegna starfsemi ef verkefni telst þjóna almanna­hagsmunum og/eða fellur að markmiðum Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar.

 

II. KAFLI

Lögbundin verkefni.

4. gr.

Sé ákvæðum 2. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 beitt skal eigandi eða umráða­maður mannvirkis eða lóðar bera kostnað samkvæmt gjaldskrá af eftirliti með því að farið hafi verið að kröfum um úrbætur samkvæmt 3. mgr. 29. gr. sömu laga. Einnig er heimilt að taka gjald fyrir öryggis- og lokaúttektir samkvæmt 2. mgr. 12. gr. sömu laga.

Fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns er 20.840 kr.

 

5. gr.

Eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar.

Fyrir eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar skal tekið fast gjald, 20.840 kr., fyrir hverja byrjaða klukku­stund. Þegar um útkall er að ræða utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru inn­heimtar 83.360 kr., auk 20.840 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.

 

6. gr.

Öryggisvaktir við mannvirki.

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna öryggisvakta eftir að eiganda eða forráðamanni hefur verið tilkynnt ákvörðun slökkviliðsstjóra um að öryggisvakt skuli sett á viðkom­andi húseign. Á það jafnframt við um tilfallandi vaktir vegna tímabundinna viðburða þar sem fullum eld­vörnum verður ekki við komið eða á meðan unnið er að úrbótum á þeim. Innheimtar eru að lágmarki 83.360 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 20.840 kr. fyrir hverja byrjaða klukku­stund umfram fjóra tíma. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 30. gr. laga um brunavarnir.

 

7. gr.

Lokun mannvirkis.

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna lokunar mannvirkis eftir að eiganda eða forráðamanni hefur verið tilkynnt ákvörðun slökkviliðsstjóra um að loka skuli viðkomandi mann­virki. Innheimtar eru 20.840 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Þegar um útkall er að ræða utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru innheimtar 83.360 kr., auk 20.840 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 32. gr. laga um brunavarnir.

 

8. gr.

Dagsektir.

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til frá og með ákvörðun slökkviliðs­stjóra um dagsektir og þar til kröfum um úrbætur á eldvörnum hefur verið fullnægt. Innheimtar eru 20.840 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.

 

9. gr.

Öryggis- og lokaúttektir.

Innheimt er fyrir alla vinnu sem fellur til vegna öryggis- og lokaúttektar. Innheimtar eru 72.810 kr. fyrir lokaskoðun eldvarnaeftirlits og 47.330 kr. fyrir öryggisskoðun. Fyrir stærri úttektir skulu að auki innheimtar 20.840 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvo tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 12. gr. laga um brunavarnir.

 

10. gr.

Útköll vegna brunaviðvörunarkerfa.

Sé slökkvilið kallað út vegna boða frá sjálfvirku brunaviðvörunarkerfi án þess að eldur sé laus skal innheimt fyrir kostnaði af eftirliti með því að gerðar séu nauðsynlegar ráð­staf­anir til þess að koma í veg fyrir endurtekin falsboð.

Innheimt er fast gjald fyrir fjórar klukkustundir, 29.600 kr., fyrir eftirlitið. Leiði það hins vegar til frekara eftirlits, vegna ítrekaðra falsboðana eða alvarlegra ágalla á bruna­vörnum, fellur það undir eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar, sbr. 6. gr. þessarar gjald­skrár og er þá innheimt samkvæmt því. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.

 

11. gr.

Umsagnir.

Umsagnir slökkviliðsstjóra til einkaaðila eða annarra stjórnvalda eru ekki fyrirskrifaðar í lögum um brunavarnir. Umsagnir til annarra stjórnvalda eru þó eftir atvikum áskildar í lögum um aðra málaflokka og reglugerðum settum samkvæmt þeim.

Innheimt er fast gjald, 20.840 kr. Þegar um útkall er að ræða utan tilskilins daglegs vinnu­tíma starfsmanns eru innheimtar 83.360 kr., auk 20.840 kr. fyrir hverja byrjaða klukku­stund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

 

III. KAFLI

Önnur verkefni og þjónusta.

12. gr.

Slökkvilið Ísafjarðarbæjar sinnir öðrum verkefnum sem eru ekki skilgreind sem verkefni liðsins samkvæmt lögum. Þessi verkefni falla þó að tilgangi Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar sem er að vinna að vel­ferð íbúa sveitarfélagsins, séu þau ekki falin öðrum til úrlausnar í lögum né fram­kvæmd í samkeppni við aðra aðila. Því ber að taka gjald fyrir veitta þjónustu.

Fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns er 26.140 kr. nema annað sé sérstaklega tekið fram. Hér er tekið tillit til sam­keppnis­sjónarmiða, þjálfunar, virkjunar­tíma og þess að þjónustan er aðgengileg allan sólar­hringinn, allt árið. Þess er gætt að gjaldið endur­spegli eftir bestu getu raun­kostnað.

 

13. gr.

Ráðgjafarþjónusta.

Falli ráðgjafarvinna undir ákvæði stjórnsýslulaga um upplýsinga- og leiðbeiningaskyldu skal sú vinna undanþegin gjaldi. Ef ráðgjafarvinnan er fyrir utan ákvæði d-liðar 1. mgr. 12. gr. laga um bruna­varnir nr. 75/2000, um leiðbeiningar til fyrirtækja og stofnana eftir atvikum um hvaðeina er varðar brunavarnir og eldsvoða vegna viðkomandi starfsemi, er þjónustan gjaldskyld. Innheimtar eru 20.840 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

 

14. gr.

Fylgd vegna sprengiefnaflutninga.

Sprengiefnafylgd er ekki áskilin í lögum um brunavarnir heldur getur lögreglustjóri sett fram kröfur um fylgd slökkviliðs við slíkan flutning. Innheimt er að lágmarki 83.360 kr. fyrir hvern starfs­mann sem sinnir verkefninu, auk 20.840 kr. fyrir hverja byrjaða klukku­stund umfram fjóra tíma.

 

15. gr.

Viðbúnaður utan gildissviðs laganna.

Í 2. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 kemur fram að lögin gilda um eld­varnir og slökkvistörf vegna eldsvoða og viðbúnað við mengunaróhöppum á landi nema kveðið sé á um annað í lögunum. Lögin gilda enn fremur um björgun á fastklemmdu fólki úr mannvirkjum og farar­tækjum með sér­hæfðum björgunarbúnaði. Lögin taka ekki til eldvarna í skipum með haffæris­skírteini, loftförum, almennum vinnu­vélum, bifreiðum eða öðrum vélknúnum ökutækjum.

Ef óskað er eftir því að slökkviliðið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal slökkvi­liðsstjóri innheimta fyrir tæki og vinnu samkvæmt gjaldskrá ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal að lágmarki 203.940 kr., auk 20.840 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

 

16. gr.

Upphreinsun.

Upphreinsun sem fellur ekki undir skilgreiningu 3. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 á meng­unaróhappi er sinnt af slökkviliði þótt ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, meðan ekki eru aðrir þar til hæfir aðilar tiltækir til að sinna verkefninu. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skal slíku tilviki.

Slökkviliðsstjóri skal innheimta samkvæmt gjaldskrá fyrir vinnu við upphreinsun, efni sem notuð eru til upphreinsunar, meðhöndlun og förgun þeirra, ef ekki liggja fyrir samn­ingar um annað. Inn­heimta skal að lágmarki 203.940 kr., auk 20.840 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

 

17. gr.

Verðmætabjörgun og vatnslekar.

Verðmætabjörgun sem ekki er tilgreind í lögum um brunavarnir, t.d. vegna vatnsleka, er sinnt af slökkvi­liði þótt ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, meðan ekki eru aðrir þar til hæfir aðilar tiltækir til að sinna verkefninu. Slökkviliðsstjóri skal innheimta gjald fyrir vinnu samkvæmt gjaldskrá ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal að lágmarki 203.940 kr., auk 20.840 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

 

18. gr.

Tækjaleiga.

Tækjaleiga er ekki fyrirskrifuð í lögum um brunavarnir. Þó er eðlilegt að leigja tæki sem eru þess eðlis að ekki er hægt að leigja þau hjá öðrum aðilum eða ef aðstæður kalla á skjóta notkun sem aðrir aðilar geta ekki boðið.

Verðlagning er ákveðin þannig að hún sé ávallt í það minnsta 35% hærri en leiga á svip­uðum eða sambærilegum tækjum sem aðrir geta útvegað til að tryggja sam­keppnis­sjónarmið. Oftast er um að ræða dælu- eða körfubíla, t.d. vegna kvikmynda­gerðar eða einhverrar uppákomu sem kallar á slíkan búnað. Verðlagning á tækjum er endurskoðuð árlega.

Tæki Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar skulu aðeins notuð af starfsmönnum slökkviliðsins. Innheimtar eru að lágmarki 83.360 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 20.840 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma, auk tækjaleigu.

 

19. gr.

Annað.

Innheimt skal gjald fyrir aðra vinnu sem ekki er tilgreind hér og ekki er mælt fyrir um í lögum. Innheimt skal fyrir alla vinnu og tæki. 45% álag er lagt á útselda vinnu starfsmanna slökkviliðs eftir kl. 16 á virkum dögum og um helgar. Getur þetta átt við um þjónustu vegna sérstakra verkefna eins og kvikmyndatöku, móttöku erlendra þjóðhöfðingja eða sendimanna, menningarviðburða o.fl. þess háttar.

 

IV. KAFLI

Innheimta.

20. gr.

Ísafjarðarbær annast innheimtu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari eða innheimtufyrirtæki sem verk­­efnið er falið samkvæmt samningi þar að lútandi. Um innheimtu gjalda skal fara eftir viðteknum venjum í innheimtu opinberra stofnana. Gjalddagi gjalda samkvæmt gjald­skránni er útgáfudagur reiknings og eindagi er 30 dögum síðar. Dráttarvextir reikn­ast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga.

Á verð skv. gjaldskrá þessari er lagður 24% virðis­aukaskattur ef um er að ræða vörur eða skatt­skylda þjónustu í samkeppni við atvinnufyrirtæki, sbr. 4. tl. 3. gr. laga nr. 50/1988 um virðisauka­skatt.

Gjöldum sem til eru komin vegna aðgerða til að knýja fram úrbætur samkvæmt lögum, sbr. 6. gr. t.o.m. 11. gr., fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð, sbr. 3. mgr. 12. gr., 3. og 4. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000.

 

V. KAFLI

Gildistaka og lagastoð.

21. gr.

Gjaldskrá þessi er sett með heimild í lögum nr. 75/2000 og reglugerðum settum samkvæmt þeim. Gjaldskráin öðlast gildi frá 1. janúar 2025. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá Slökkvi­liðs Ísafjarðarbæjar nr. 1356/2023.

 

Þannig samþykkt í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, 3. október 2024.

 

Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 11. nóvember 2024