Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1365/2018

Nr. 1365/2018 28. nóvember 2018

AUGLÝSING
um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, fráveita, nr. 900/2012.

1. gr.

2. gr. gjaldskrárinnar verður svohljóðandi:

Álagningarstofn fráveitugjalds skv. 2. gr. skal vera 0,150% af fasteignamati allra húsa og lóða skv. lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001 með síðari breytingum.

Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekkert fráveitugjald.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem sett er með heimild í 15. gr. laga nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitna og 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, öðlast þegar gildi.

Samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar, 28. nóvember 2018.

Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 24. janúar 2019