Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 272/2020

Nr. 272/2020 27. mars 2020

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um stjórnsýslumeðferð mála skv. barnalögum nr. 231/1992.

1. gr.

Við 10. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein sem orðast svo:

Ef sérstaklega stendur á að mati sýslumanns getur sýslumaður ákveðið að mál sé tekið fyrir í gegnum síma, fjarfundarbúnað eða annað fjarskiptatæki enda verði fyrirtöku málsins háttað þannig að allir heyri þau orðaskipti sem fram fara.

 

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. reglugerðarinnar:

  1. 4. tl. orðast svo: Hverjir eru mættir og eftir atvikum hvort mál sé tekið fyrir í gegnum síma, fjarfundarbúnað eða annað samskiptatæki, sbr. 2. mgr. 10. gr.
  2. 5. tl. orðast svo: Hvaða skjöl eru kynnt fyrir málsaðila, hvers eðlis þau eru og hvaða númer þau fá.
  3. Í stað orðsins „frammi“ í 6. tl. kemur orðið: fyrir.
  4. 9. tl. orðast svo: Í niðurlagi bókunar að hún hafi verið lesin í heyranda hljóði, eftir atvikum í gegnum síma, fjarfundarbúnað eða annað samskiptatæki og staðfest rétt af aðilum eða umboðs­mönnum þeirra með undirritun þeirra. Heimilt er að óska eftir undirritun eða stað­fest­ingu málsaðila með rafrænum hætti.

 

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 1. mgr. 79. gr. barnalaga, nr. 76 27. mars 2003, öðlast þegar gildi.

 

Dómsmálaráðuneytinu, 27. mars 2020.

 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Haukur Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 30. mars 2020