1. gr.
Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt ákvæðum 11. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Hún er í samræmi við samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Hvalfjarðarsveit, nr. 1528/2024.
2. gr.
Gjald fyrir meðhöndlun úrgangs frá íbúðarhúsnæði.
Innheimta skal gjald fyrir meðhöndlun úrgangs frá öllu íbúðarhúsnæði í Hvalfjarðarsveit samkvæmt eftirfarandi álagsgrunni. Gjaldið miðast við grunneiningu íláta fyrir heimilisúrgang skv. samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Hvalfjarðarsveit, stærð þeirra íláta og losunartíðni.
Gjald fyrir grunneiningu íláta við íbúðarhúsnæði greiðist árlega sem hér segir:
Tegundir íláta |
Gjald kr./ílát á ári |
Blandaður úrgangur 140 l |
28.000 |
Blandaður úrgangur 240 l |
37.000 |
Blandaður úrgangur 660 l |
110.000 |
Pappír/pappi og plast 140 l |
4.000 |
Pappír/pappi og plast 240 l |
6.000 |
Pappír/pappi 660 l |
8.000 |
Lífúrgangur 140 l |
8.000 |
Framangreindar fjárhæðir eru lágmarksfjárhæðir.
Ef fasteignareigandi óskar eftir viðbótaríláti eða stærra íláti við íbúðarhús skal greiða viðbótargjald fyrir hvert ílát samkvæmt gjaldskrá fyrir tegund úrgangs og ílát. Umsýslugjald vegna breyttrar þjónustu er 4.500 kr. í hvert sinn sem óskað er breytinga. Á þetta við um breytingu á ílátum, viðbótarílát eða breytta skráningu.
Ef ílát skemmist eða hverfur vegna þess að það hefur ekki verið gengið nægilega vel frá því t.d. undir skýli eða að festingar vantar verður innheimtur raunkostnaður á hvert ílát samkvæmt reikningi frá verktaka.
3. gr.
Gjald fyrir fastan kostnað.
Innheimta skal gjald fyrir fastan kostnað, rekstur grenndarstöðva og meðhöndlun úrgangs sem hér segir:
Íbúðarhúsnæði |
20.000 kr. |
Frístundahúsnæði og það íbúðarhúsnæði sem ekki hefur grunneiningu íláta |
29.000 kr. |
4. gr.
Gjaldtaka á móttökustöð.
Íbúar, frístundahúseigendur og rekstraraðilar í Hvalfjarðarsveit hafa greiðan aðgang að endurvinnslustöðinni Gámu að Höfðaseli 16 við Akranes. Gjaldtaka miðast við m³ þess úrgangsmagns sem afsett er skv. gjaldskrá endurvinnslustöðvarinnar ásamt komugjaldi.
5. gr.
Samnýting íláta.
Gjöld fyrir meðhöndlun úrgangs skv. gjaldskrá skiptast í jöfnum hlutföllum á milli þeirra aðila sem nýta sömu ílát að uppfylltum reglum um samnýtingu sorpíláta.
6. gr.
Gjalddagar og innheimta.
Gjalddagar fyrir meðhöndlun úrgangs skv. 2. gr. skulu vera þeir sömu og sveitarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts. Skráður eigandi fasteignar ber ábyrgð á greiðslu gjaldsins.
Óski eigandi fasteignar eftir breytingu á fjölda eða stærð íláta tekur breyting á gjaldheimtu gildi frá og með næsta mánuði eftir afhendingu. Sama gildir þegar samnýting sorpíláta er heimiluð. Sveitarfélagið annast skráningu íláta og skiptingu gjalds á eigendur, gegn greiðslu umsýslugjalds.
Aukagjöld sem lögð eru á innheimtast eftir á, við næstu mánaðamót.
Gjöld fyrir meðhöndlun og urðun úrgangs í Hvalfjarðarsveit er heimilt að innheimta með fjárnámi í fasteign án tillits til eigendaskipta. Gjöldin njóta lögveðsréttar í fasteign næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.
7. gr.
Gildistaka.
Gjöld þessi miðast við vísitölu neysluverðs í október 2024 sem er 634,1 stig og uppfærast samkvæmt breytingum vísitölunnar í janúar ár hvert, fyrst í janúar 2026 og skulu gilda þannig næsta ár.
Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar 27. nóvember 2024, með stoð í 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og á grunni samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Hvalfjarðarsveit nr. 1528/2024. Gjaldskráin öðlast gildi 1. janúar 2025. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1577/2023.
Hvalfjarðarsveit, 5. desember 2024.
Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri.
|