1. gr.
Við reglugerðina bætist ný grein, 53. gr. a, svohljóðandi ásamt fyrirsögn:
Önnur ákvæði.
- Serbía, hvað varðar Belgrad Nikola Tesla flugvöll, bætist við þau lönd sem viðurkennt er að beiti flugverndarkröfum sem jafngildi sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd í almenningsflugi.
- Ísrael, hvað varðar Ben Gurion flugvöll, bætist við þau lönd sem viðurkennt er að beiti flugverndarkröfum sem jafngildi sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd í almenningsflugi, að því er varðar vernd loftfara og skimun farþega og handfarangurs.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 70. gr. d., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast gildi 16. febrúar 2020 að því er varðar Serbíu en 1. apríl 2020 að því er varðar Ísrael.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 5. febrúar 2020.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
|