1. gr.
Í stað orðanna „Sagnfræði- og heimspekideild“ í fyrirsögn VI. kafla reglnanna koma orðin: Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði.
2. gr.
Í stað orðanna „sagnfræði- og heimspekideild“ í 1. mgr. 26. gr. reglnanna koma orðin: deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði.
3. gr.
Í stað orðanna „sagnfræði- og heimspekideild“ í 1. mgr. 27. gr. reglnanna koma orðin: deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði.
4. gr.
Í stað orðanna „sagnfræði- og heimspekideild“ í 1. mgr. 28. gr. reglnanna koma orðin: deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði.
5. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, að fenginni tillögu hugvísindasviðs, eru settar samkvæmt heimild í 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast gildi 1. júlí 2022.
Háskóla Íslands, 11. apríl 2022.
Jón Atli Benediktsson.
|