1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
|
1.5 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/1611 frá 25. október 2018 um breytingu á ákvörðun 2010/638/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðveldinu Guineu, sbr. fylgiskjal 1.5. |
|
1.6 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2019/1790 frá 24. október 2019 um breytingu á ákvörðun 2010/638/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðveldinu Guineu, sbr. fylgiskjal 1.6. |
|
1.7 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/1556 frá 23. október 2020 um breytingu á ákvörðun 2010/638/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Lýðveldinu Guineu, sbr. fylgiskjal 1.7. |
|
2.3 |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/1604 frá 25. október 2018 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 1284/2009 um vissar þvingunaraðgerðir varðandi Lýðveldið Guineu, sbr. fylgiskjal 2.3. |
|
2.4 |
Reglugerð ráðsins (ESB) 2019/1778 frá 24. október 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1284/2009 um vissar þvingunaraðgerðir varðandi Lýðveldið Guineu, sbr. fylgiskjal 2.4. |
2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á vef öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna eða Stjórnartíðinda Evrópusambandsins, eftir því sem við á. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
2. gr.
Gildístaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 5. febrúar 2021.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|