1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 110. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2677 frá 8. október 2024 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerðin sem nefnd er í 1. gr. er birt á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 55/2024.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um matvæli nr. 93/1995, lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru nr. 22/1994 og lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim nr. 25/1993.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 1. nóvember 2024.
Bjarni Benediktsson.
|