Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1444/2022

Nr. 1444/2022 13. desember 2022

REGLUGERÐ
um togveiðar á kolmunna árið 2023.

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til flotvörpuveiða íslenskra skipa á kolmunna í fiskveiðilandhelgi Íslands, fiskveiðilandhelgi Færeyja og á veiðistjórnunarsvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC).

 

2. gr.

Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda flotvörpuveiðar á kolmunna, sem hafa aflamark í kolmunna.

Skipum sem stunda kolmunnaveiðar er óheimilt að vera með þannig útbúnað að mögulegt sé að dæla úr tönkum skips undir yfirborði sjávar.

Fyrir tímabilið 1. janúar 2023 til 31. desember 2023 er leyfilegur heildarafli sem hér segir (magn í tonnum):

A B C
286.882 15.205 271.677
  1. Leyfilegur heildarafli.
  2. Skerðing skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%).
  3. Fiskistofa úthlutar aflamarki á grundvelli aflahlutdeildar.

Heimilt er hverju skipi að veiða allt að 5% umfram aflamark í kolmunna á árinu 2023 og dregst sá umframafli frá aflamarki þess á árinu 2024. Þá er heimilt að flytja allt að 10% af ónýttu aflamarki fiskiskips frá árinu 2023 til ársins 2024. Flutningsheimildir samkvæmt þessari grein eiga einnig við um aflaheimildir sem skip fá úthlutað af aflamagni sem dregið er frá upphaflegri úthlutun sam­kvæmt B-lið 2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar.

 

3. gr.

Óheimilt er að stunda kolmunnaveiðar með flotvörpu vestan 20°30´ V og innan línu fyrir Suður- og Austurlandi sem dregin er milli eftirgreindra punkta: 

  1. 63°05,90´ N - 020°30,00´ V
  2. 63°11,40´ N - 019°07,30´ V
  3. 63°07,50´ N - 018°38,00´ V
  4. 63°09,00´ N - 018°27,00´ V
  5. 63°07,00´ N - 018°02,00´ V
  6. 63°12,50´ N - 017°00,00´ V
  7. 63°20,00´ N - 016°03,00´ V
  8. 63°22,50´ N - 015°51,00´ V
  9. 63°26,00´ N - 015°29,00´ V
  10. 63°30,70´ N - 015°00,00´ V
  1. 63°33,60´ N - 014°41,70´ V
  2. 63°43,40´ N - 013°53,00´ V
  3. 64°00,00´ N - 013°07,00´ V
  4. 64°21,70´ N - 012°17,30´ V
  5. 64°32,30´ N - 011°41,00´ V
  6. 65°00,00´ N - 011°28,00´ V
  7. 65°27,00´ N - 011°24,00´ V
  8. 66°06,00´ N - 011°33,00´ V
  9. 66°42,00´ N - 012°50,00´ V 

 

og þaðan í rv. 305° að mörkum fiskveiðilögsögunnar. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. eru kolmunna­veiðar heimilar innan íslenskrar lögsögu vestan 27°30´ V.

 

4. gr.

Kolmunnasýni skulu tekin úr afla, a.m.k. eitt í hverri veiðiferð og skal skrá sýnatökuna í afla­dagbók skipsins. Í hverju sýni skulu vera a.m.k. 50 stykki af kolmunna sem valin eru af handahófi. Sýnin skulu fryst um borð, rækilega merkt (staður, dagsetning og dýpi) og send Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, í Hafnarfirði eða útibúum stofnunarinnar að lokinni veiðiferð.

 

5. gr.

Fiskiskip sem stunda kolmunnaveiðar á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafs-fiskveiði­nefndar­innar (NEAFC) skulu búin fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar um staðsetningu, stefnu og hraða viðkomandi skips á klukkustundar fresti, með sjálfvirkum hætti, til sameiginlegrar eftirlits­stöðvar Landhelgisgæslunnar og Fiskistofu, hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin, sem miðlar gögnum til hlutaðeigandi stofnana.

Óheimilt er að halda til veiða fyrr en starfsmenn Eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest að fjarskipta­búnaður starfi eðlilega. Skulu sendingar samkvæmt framangreindu hefjast þegar viðkomandi skip lætur úr höfn og skal þeim ekki ljúka fyrr en skipið kemur til hafnar að nýju til löndunar afla.

Ef búnaður til sjálfvirkra sendinga bilar skal gert við hann svo fljótt sem mögulegt er, þó eigi síðar en að 30 dögum liðnum. Þar til búnaðurinn verður kominn í lag skal senda á annan hátt upp­lýsingar um staðsetningu skipsins á a.m.k. 4 klukkustunda fresti til Eftirlitsstöðvarinnar.

 

6. gr.

Um tilkynningar við kolmunnaveiðar á alþjóðlegu hafsvæði gilda ákvæði reglugerðar um veiði­eftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) og taka þær tilkynn­ingar einnig til veiða innan lögsögunnar sem og veiða í færeyskri lögsögu.

Um tilkynningar til Færeyja vegna veiða innan færeysku lögsögunnar fer samkvæmt reglum færeyskra stjórnvalda.

Eftir að skip hættir veiðum og í síðasta lagi fjórum klukkustundum áður en áætlað er að það komi til hafnar skal skipstjóri senda Fiskistofu tilkynningu á því formi sem Fiskistofa ákveður um áætl­aðan afla skipsins, fyrirhugaðan löndunarstað og löndunartíma. Heimilt er að víkja frá lágmarks­­tíma t.d. ef fjarlægð milli fiskimiða og löndunarhafnar gefur tilefni til þess, enda sé þá tilkynning send um leið og veiðum er hætt.

 

7. gr.

Kolmunnaafla skal landað og hann veginn í íslenskri höfn. Heimilt er þó með leyfi Fiskistofu að landa kolmunnaafla og kolmunnaafurðum í höfnum erlendis enda sé tryggt að eftirlit með vigtun aflans sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Jafnframt er heimilt að fengnu leyfi Fiskistofu að landa óvigtuðum kolmunna um borð í vinnsluskip og flutningaskip, enda sé tryggt að skráning og vigtun afla sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Sækja skal um leyfi til löndunar kolmunna utan íslenskra hafna til Fiskistofu og skal skipstjóri tilgreina í umsókn nákvæmlega hvar hann hyggst landa aflanum og áætla magn kolmunna. Áætli skip komu til hafnar samningsaðila NEAFC með afla af samningssvæði NEAFC, hvort heldur til löndunar, umskipunar eða til að leita þjónustu að öðru leyti, skal tilkynna þar til bæru yfirvaldi í viðkomandi ríki um komu skips til hafnar innan tiltekins frests sem ákveðinn er af hafnarríkinu í samræmi við reglur NEAFC um hafnarríkiseftirlit og framkvæmd þess.Tilkynningar skal senda með rafrænum hætti á heimasíðu NEAFC, https://psc.neafc.org. Frekari upplýsingar má finna á slóðinni https://psc.neafc.org/designated-contacts.

Þegar að löndun lokinni skal skipstjóri veiðiskips senda Fiskistofu endanlegar tölur um landaðan afla og aflaverðmæti, staðfestar af móttakanda kolmunnans eða staðfest afrit af vigtarnótu, liggi það fyrir. Um vigtun á kolmunna gilda að öðru leyti ákvæði reglugerðar um vigtun sjávarafla, þó þannig að draga skal frá 2% af afla hvers skips vegna vatnsinnihalds í kolmunna miðað við afla upp úr sjó og reiknast það magn ekki til aflaheimilda þess.

 

8. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 151/1996, um fisk­veiðar utan lögsögu Íslands, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

 

9. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 3. gr. og 8. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, 8. gr. og 9. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, 2. gr. og 9. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. Reglu­gerðin öðlast gildi 1. janúar 2023. Jafnframt fellur úr gildi frá sama tíma reglugerð nr. 1661/2021, um togveiðar á kolmunna árið 2022.

 

Matvælaráðuneytinu, 13. desember 2022.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 21. desember 2022