I. KAFLI
Almennt um stuðning við fatlað fólk.
1. gr.
Lagagrundvöllur.
Í reglum þessum er kveðið á um útfærslu á þjónustu sem sveitarfélögum er skylt að veita skv. 1., 2., 3. og 5. tölul. 8. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018. Að jafnaði skal nýta almenna þjónustu samkvæmt reglum um stuðningsþjónustu, allt að 15 klukkustundum á viku, sbr. 26. og 27. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, áður en stuðningur samkvæmt reglum þessum kemur til. Öll þjónusta til fatlaðs fólks skal vera samfelld, einstaklingsbundin og samþætt í þágu notenda.
2. gr.
Markmið.
Markmið stoðþjónustu samkvæmt reglum þessum er að veita fötluðu fólki stuðning til að koma til móts við sértækar stuðningsþarfir þess og skapa því skilyrði til sjálfstæðs lífs á eigin forsendum, sbr. 19. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Markmiðið er að styðja notendur sem þurfa, aðstæðna sinna vegna, á stuðningi að halda við margháttaða aðstoð við athafnir daglegs lífs til þess að geta búið heima, verið sjálfstæðir og félagslega virkir. Stuðningur byggist fyrst og fremst á þeim markmiðum sem fatlað fólk setur sér til að ráða við daglegt líf.
3. gr.
Stuðningur.
Stoðþjónusta er fyrir þau sem búa á eigin heimili og þurfa stuðning vegna skertrar getu og langvarandi stuðningsþarfa þar sem stuðningsþörfum verður ekki fullnægt innan almennrar þjónustu. Um er að ræða margháttaðan stuðning sem byggist meðal annars á einstaklingsbundnum þörfum fólks með hliðsjón af óskum þess.
Með stuðningi í reglum þessum er átt við eftirfarandi þjónustuþætti:
- Stuðningur við athafnir daglegs lífs, sem tekur mið af þörfum notanda, svo sem við að sinna persónulegu hreinlæti, klæðast eða afklæðast og hafa eftirlit með næringu og lyfjainntöku.
- Einstaklingsstuðningur, sem miðar einkum að því að rjúfa félagslega einangrun og hefur það markmið að styðja og hvetja til þátttöku í félags- og tómstundastarfi sem og að styðja við atvinnuþátttöku, nám o.fl. Einstaklingsstuðningur getur að hámarki numið 20 klukkustundum á mánuði sem kemur til viðbótar þeim einstaklingsstuðningi sem heimilt er að veita samkvæmt reglum Fjallabyggðar um stuðningsþjónustu.
Stuðningur er ekki veittur í þeim tilvikum þegar aðrir aðilar bera ábyrgð á að veita stuðning. Leitast skal við að koma til móts við einstaklingsbundnar þarfir hvers og eins. Ekki er gert ráð fyrir að aðstoðarfólk sé maki, sambýlismaður/-kona eða náinn ættingi, sem heldur heimili með notanda.
4. gr.
Skilyrði fyrir því að umsókn um stoðþjónustu verði samþykkt.
Umsækjandi skal uppfylla öll eftirtalin skilyrði til að fá stuðning samkvæmt reglum þessum:
- Umsækjandi skal vera orðinn 18 ára. Ef einstaklingur er yngri en 18 ára vísast til reglna Fjallabyggðar um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra.
- Umsækjandi skal eiga lögheimili í Fjallabyggð. Umsækjandi sem er með lögheimili utan Fjallabyggðar getur sótt um stuðning samkvæmt reglum þessum en skilyrði er að umsækjandi sé með skráð lögheimili í Fjallabyggð á meðan þjónustan er veitt.
- Umsækjandi skal teljast fatlaður í skilningi laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, enda sé sýnt að fötlunin stafi ekki af aldurstengdri skerðingu.
- Umsækjandi skal búa í sjálfstæðri búsetu. Einstaklingar sem búa á hjúkrunarheimili eða stofnun þar sem greidd eru daggjöld frá ríkinu eiga ekki rétt á stuðningi samkvæmt reglum þessum.
- Umsækjandi skal vera metinn í þörf fyrir stuðning samkvæmt 7. gr. reglna þessara.
- Umsækjandi skal hafa fullnýtt þjónustu samkvæmt reglum Fjallabyggðar um stuðningsþjónustu.
II. KAFLI
Umsóknir og mat.
5. gr.
Umsókn.
Umsókn um stoðþjónustu er aðgengileg á þjónustugátt Fjallabyggðar. Við fyrstu umsókn skal umsækjandi boðaður í viðtal. Ráðgjafi metur stuðningsþörf umsækjanda skv. 7. gr. reglna þessara og veitir ráðleggingar um þá þjónustu sem getur komið til móts við þarfir viðkomandi. Þegar um endurnýjun á umsókn er að ræða, eða ef breytingar verða á þjónustuþörf er það mat félagsmáladeildar Fjallabyggðar hvort boða þurfi umsækjanda í viðtal eða ekki.
6. gr.
Fylgigögn með umsókn og upplýsingaöflun.
Við undirritun umsóknar er umsækjandi upplýstur um heimild félagsmáladeildar til að afla gagna frá þeim aðilum sem þar eru tilgreindir. Heimilt er að óska eftir nauðsynlegum upplýsingum og/eða gögnum frá umsækjanda og öðrum aðilum á meðan á umsóknarferlinu stendur. Ef þörf er á skal umsækjandi fá aðstoð við öflun nauðsynlegra gagna.
Með umsókn skulu eftirfarandi gögn liggja fyrir:
- Örorkumat tilkomið vegna fötlunar.
- Staðfesting á fötlun, s.s. fullnægjandi læknisvottorð eða staðfesting frá Ráðgjafar- og greiningarstöð, Þroska- og hegðunarstöð eða barna- og unglingageðdeild Landspítala.
- SIS-mat, ef við á.
7. gr.
Mat á stuðningsþörf.
Mat á stuðningsþörf er gert í samvinnu við umsækjanda og tekur mið af þörfum hans fyrir þjónustu eða aðstoð í daglegu lífi vegna fötlunar til að geta lifað í samfélaginu án aðgreiningar og til að koma í veg fyrir einangrun. Mat á stuðningsþörf fer fram á heimili umsækjanda, bæjarskrifstofum Fjallabyggðar eða öðrum vettvangi í samráði við umsækjanda. Stuðningsþarfir eru einstaklingsbundnar og taka einnig mið af þörfum og aðstæðum fjölskyldu umsækjanda.
Við mat á stuðningsþörf er horft til heildaraðstæðna umsækjanda og skipulags daglegs lífs. Markmiðið er að styðja umsækjanda við athafnir daglegs lífs til þess að geta búið heima, verið sjálfbjarga og félagslega virkur. Mat á stuðningsþörf nær einnig til möguleika á að nýta tækni, hjálpartæki og/eða þess að breyta verklagi í athöfnum daglegs lífs.
Við mat á stuðningsþörf skal litið til eftirfarandi atriða:
- Félagslegra aðstæðna.
- Samfélagsþátttöku og virkni.
- Félagslegrar færni.
- Styrkleika.
- Athafna daglegs lífs.
- Heilsu.
- Hegðunar.
- Annarra mikilvægra upplýsinga.
8. gr.
Samþykkt umsókna og forgangsröðun.
Sé umsókn samþykkt fær umsækjandi skriflegt svar þess efnis. Þegar fyrirséð er að þjónusta geti hafist er gerð stuðningsáætlun ásamt einstaklingsbundinni þjónustuáætlun, þegar við á.
Fullnægi umsækjandi skilyrðum 4. gr. reglna þessara, raðast umsókn í forgangsröð með hliðsjón af mati á stuðningsþörf umsækjanda og forgangsröðun í stoðþjónustu.
Ef fyrirséð er að stuðningur geti ekki hafist innan þriggja mánaða skal umsókn sett á biðlista. Umsækjandi er upplýstur um áætlaða lengd á biðtíma og hvaða stuðningur standi honum til boða á biðtímanum, sbr. 1. mgr. 3. gr. reglugerðar um biðlista, forgangsröðun og úrræði á biðtíma eftir þjónustu nr. 1035/2018.
Sé niðurstaða mats sú að aðstæður umsækjanda séu ekki með þeim hætti að þörf sé á stuðningi ber að synja umsókninni og er umsækjandi upplýstur um það skriflega.
9. gr.
Áætlun um framkvæmd stuðnings.
Stuðningur skal ætíð byggja á skýrum markmiðum og koma skal fram hvernig árangur verði metinn reglulega samkvæmt stuðnings- eða þjónustuáætlun. Tryggja skal að notandi geti komið sínum sjónarmiðum á framfæri á þann hátt sem hentar honum.
Í áætlun skal koma fram:
- Markmið með stuðningi og hvernig markmiðum skuli náð.
- Hvaða stuðning er um að ræða og hvernig hann skuli veittur.
- Upphæð útlagðs kostnaðar starfsmanns, ef við á.
- Ferðamáti notanda og starfsmanns, ef við á. Leggja skal upp með að nýta almenningssamgöngur.
III. KAFLI
Framkvæmd.
10. gr.
Tími og umfang stuðnings.
Að jafnaði er stuðningur samkvæmt reglum þessum veittur milli kl. 07.00 og 24.00.
Stuðningur samkvæmt reglum þessum er veittur í samræmi við einstaklingsbundnar þarfir. Ákvörðun um stoðþjónustu felur í sér að stuðningur sé að jafnaði veittur í tiltekinn fjölda klukkustunda í mánuði eða í viku hverri á grundvelli mats á stuðningsþörfum.
11. gr.
Breyttar aðstæður og endurmat.
Notanda, aðstandanda eða persónulegum talsmanni, eftir atvikum, ber að upplýsa félagsmáladeild um breytingar á högum sem áhrif kunna að hafa á fyrirliggjandi mat. Ef um er að ræða verulegar breytingar eftir að umsókn hefur verið samþykkt er heimilt að endurskoða stuðningsþörf og áætlun um framkvæmd stuðnings.
Leitast skal við að meta og skrá árangur stoðþjónustu með reglubundnum hætti.
IV. KAFLI
Ýmis ákvæði.
12. gr.
Ferðir og kostnaður.
Að meginstefnu skal nota almenningssamgöngur þegar stoðþjónusta er veitt utan heimilis.
Notanda ber að greiða fyrir sig allan þann kostnað sem hlýst af því að stuðningur sé veittur utan heimilis.
Félagsmáladeild endurgreiðir starfsmanni útlagðan kostnað vegna þjónustunnar. Útlagður kostnaður starfsmanns skal tengdur þeim markmiðum sem sett eru í stuðningsáætlun. Miðað skal við fjárhæð á mánaðargrunni, sbr. viðmið félagsmáladeildar.
Félagsmáladeild greiðir starfsmanni bifreiðastyrk skv. akstursdagbók sé heimild fyrir akstri á einkabifreið samkvæmt stuðningsáætlun. Í þeim tilfellum skal miða við hámarksfjölda kílómetra á mánaðargrunni, sbr. viðmið félagsmáladeildar. Horft skal til fjölda samþykktra tíma við ákvörðun kílómetrafjölda. Greitt er fyrir akstur samkvæmt ákvörðun ferðakostnaðarnefndar ríkisins um kílómetragjald hverju sinni.
13. gr.
Vinnuaðstæður.
Í lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum nr. 46/1980 merkir vinnustaður það umhverfi innanhúss og utan, þar sem starfsmaður hefst við eða þarf að fara um starfa sinna vegna. Þar skal gætt fyllsta öryggis og góður aðbúnaður tryggður. Starfsmaður skal hafa aðgang að þeim búnaði sem nauðsynlegur er svo hann geti sinnt starfi sínu sem skyldi.
Vinna starfsmanna í stoðþjónustu fer fram á einkaheimilum og þarf notandi eða umbjóðandi hans að tryggja að aðstæður séu þannig að áður nefndum atriðum sé fullnægt.
Skapist þær aðstæður inni á heimilinu að öryggi starfsfólks sé ógnað, t.d. vegna óreglu, áreitni eða ógnandi hegðunar, þarf tafarlaust að gera viðeigandi ráðstafanir. Fresta getur þurft þjónustu á meðan leitað er ráðgjafar og aðstoðar við að finna viðeigandi lausnir.
Starfsmönnum er óheimilt að reykja inni á heimilum notenda og notendur gangast inn á að reykja ekki meðan starfsmenn eru inni á heimilinu.
V. KAFLI
Málsmeðferð og ákvörðun.
14. gr.
Málsmeðferð.
Um málsmeðferð gilda ákvæði stjórnsýslulaga, nr. 37/1993 og ákvæði VII. kafla laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
15. gr.
Viðeigandi aðlögun.
Við alla vinnslu og meðferð umsókna skv. reglum þessum skal tryggja að viðeigandi stuðningur, aðstoð og leiðbeiningar séu veittar til að umsækjandi geti nýtt sér stuðninginn. Í því felst m.a. að upplýsingar séu settar fram á því formi sem viðkomandi einstaklingur getur nýtt sér, tryggt sé að hann komi sínum sjónarmiðum á framfæri og sé kynntur réttur sinn til að vísa máli sínu lengra, telji hann þörf á.
16. gr.
Málshraði.
Kanna skal aðstæður umsækjanda svo fljótt sem unnt er eftir að umsókn berst. Sama á við ef félagsmáladeild berast upplýsingar um nauðsyn á aðstoð með öðrum hætti.
Félagsmáladeild skal taka ákvörðun í máli án óhóflegra tafa og tryggja að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin. Þegar fyrirsjáanlegt er að afgreiðsla máls muni tefjast ber að skýra aðila máls frá því. Skal þá upplýsa um ástæður tafanna og hvenær ákvörðunar sé að vænta.
17. gr.
Samvinna við umsækjanda.
Við meðferð umsóknar, öflun gagna og upplýsinga sem og við ákvarðanatöku skal hafa samvinnu og samráð við umsækjanda eftir því sem unnt er en að öðrum kosti við lögráðamann eða persónulegan talsmann hans eftir því sem við á.
18. gr.
Endurskoðun.
Rétt til stoðþjónustu má endurskoða hvenær sem er. Meta skal hvort umsækjandi fullnægi skilyrðum reglna þessara og hvort breytingar sem orðið hafa á aðstæðum umsækjanda og/eða annarra heimilismanna hafi áhrif á rétt hans og umfang þjónustu.
19. gr.
Rangar eða villandi upplýsingar.
Ef sannreynt er við meðferð máls að upplýsingar sem umsækjandi hefur veitt eru rangar eða villandi, stöðvast afgreiðsla umsóknarinnar á meðan umsækjanda er gefið tækifæri til að leiðrétta eða bæta úr annmörkum.
Ef umsókn um stoðþjónustu er lögð fram á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga af hálfu umsækjanda veldur það synjun umsóknar eða getur leitt til afturköllunar ákvörðunar.
20. gr.
Varðveisla gagna, trúnaður og aðgangur að gögnum.
Málsgögn er varða persónulega hagi einstaklinga skulu varðveitt með tryggilegum hætti. Hafi starfsmenn kynnst einkahögum umsækjanda eða annarra í starfi sínu er leynt eiga að fara samkvæmt lögum eða eðli máls er þeim óheimilt að fjalla um þau mál við óviðkomandi nema að fengnu samþykki viðkomandi. Þagnarskylda helst eftir að starfsmaður lætur af störfum.
Umsækjandi á rétt á að kynna sér upplýsingar úr skráðum gögnum sem varða mál hans að svo miklu leyti sem það stangast ekki á við trúnað gagnvart öðrum.
Vinnsla mála og varðveisla gagna byggist á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 og lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014.
21. gr.
Leiðbeiningar til umsækjanda.
Við afgreiðslu umsóknar skal starfsfólk félagsmáladeildar bjóða umsækjanda ráðgjöf ef þörf er á og veita upplýsingar og leiðbeiningar um réttindi sem hann kann að eiga annars staðar. Þá skal starfsfólk einnig upplýsa umsækjanda um þær skyldur sem kunna að hvíla á honum vegna framkvæmdar samkvæmt reglum þessum.
Sérstaklega skal gætt að frumkvæðisskyldu hvað varðar þjónustu við fatlað fólk, sbr. 32. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
22. gr.
Heimildir til ákvarðana samkvæmt reglum þessum.
Félagsmáladeild tekur ákvarðanir samkvæmt reglum þessum í umboði félagsmálanefndar.
23. gr.
Niðurstaða og rökstuðningur synjunar.
Kynna skal niðurstöðu á afgreiðslu umsóknar með skriflegum hætti svo fljótt sem unnt er. Sé umsókn synjað skal umsækjandi fá skriflegt svar þar sem vísað er með skýrum hætti til viðeigandi ákvæða reglna þessara og leiðbeint um heimild til að óska rökstuðnings fyrir synjun.
Upplýsa skal umsækjanda um rétt hans til að fara fram á endurskoðun synjunar. Umsækjandi getur áfrýjað ákvörðun félagsmáladeildar til félagsmálanefndar innan fjögurra vikna frá því honum barst vitneskja um ákvörðun.
24. gr.
Málskot til úrskurðarnefndar velferðarmála.
Ákvörðun félagsmálanefndar skal kynnt umsækjanda skriflega og samhliða kynntur réttur hans til að kæra ákvörðunina til úrskurðarnefndar velferðarmála. Umsækjandi getur kært synjun félagsmálanefndar til úrskurðarnefndar velferðarmála. Skal það gert innan þriggja mánaða frá því að umsækjanda var kunngerð ákvörðun félagsmálanefndar.
25. gr.
Gildistaka.
Reglur þessar kveða á um útfærslu á þjónustu sem sveitarfélögum er skylt að veita og eru settar með stoð í 25.-27. gr. og XI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og 1.-3. tl. og 5. tl. 8. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018.
Reglur þessar öðlast þegar gildi.
Samþykkt í félagsmálanefnd Fjallabyggðar, 29. nóvember 2022.
Samþykkt á 223. fundi bæjarstjórnar Fjallabyggðar, 15. desember 2022.
Fjallabyggð, 7. september 2023.
Sigríður Ingvarsdóttir bæjarstjóri.
|