1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
|
3.40 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/241 frá 21. febrúar 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.40. |
|
3.41 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/265 frá 23. febrúar 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.41. |
|
3.42 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/267 frá 23. febrúar 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.42. |
|
4.44 |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/236 frá 21. febrúar 2022 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.44. |
|
4.45 |
Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/259 frá 23. febrúar 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.45. |
|
4.46 |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/260 frá 23. febrúar 2022 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.46. |
|
4.47 |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/261 frá 23. febrúar 2022 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.47. |
|
7.12 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/52 frá 13. janúar 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.12. |
|
7.13 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/264 frá 23. febrúar 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.13. |
|
8.5 |
Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/262 frá 23. febrúar 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.5. |
|
9 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/266 frá 23. febrúar 2022 um þvingunaraðgerðir til að bregðast við viðurkenningu á héruðunum Donetsk og Luhansk í Úkraínu, sem lúta ekki stjórn ríkisstjórnar og skipunum um að senda rússneskan herafla inn í þessi héruð. |
|
10 |
Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/263 frá 23. febrúar 2022 um þvingunaraðgerðir til að bregðast við viðurkenningu á héruðunum Donetsk og Luhansk í Úkraínu, sem lúta ekki stjórn ríkisstjórnar og skipunum um að senda rússneskan herafla inn í þessi héruð. |
2. gr.
Yfirflugsbann.
Öllum loftförum í eigu, leigu, sem rekin eru af eða á annan hátt starfrækt eða stjórnað af rússneskum ríkisborgurum og aðilum með flugrekstrarskírteini gefin út af rússneskum yfirvöldum er bannað að fara í, úr eða í gegnum íslenska lofthelgi. Þar á meðal sem markaðsflugrekandi með sameiginleg flugnúmer, í föstum sætakaupum og/eða rými í loftfari.
Utanríkisráðuneytið getur veitt undanþágu frá 1. mgr.
Ákvæði 1. mgr. gildir ekki ef um er að ræða nauðlendingu eða yfirflug á grundvelli neyðarástands.
3. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 28. febrúar 2022.
Bjarni Benediktsson.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|