1. gr.
Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 1370/2022, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2022/2023, staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélögum:
Dalvíkurbyggð (breyting á viðmiðum um úthlutun, vinnsluskylda innan sveitarfélags, heimil skipti á tegundum í vinnslu).
Ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022 gilda um úthlutun byggðakvóta Dalvíkur, Árskógssands og Hauganess með eftirfarandi breytingum:
|
a) |
Í stað 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar koma þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum og ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á þannig að 30% úthlutaðs byggðakvóta byggðarlags skal skipt jafnt á alla þá báta úr viðkomandi byggðarlagi sem sækja um byggðakvóta og uppfylla að öðru leyti ákvæði 1. gr. Óski einhver eftir tilteknu magni kvóta, sem er minna en hann á rétt á samkvæmt ákvæði þessu, þá skiptast eftirstöðvar þess hluta byggðakvótans jafnt á milli hinna umsækjendanna. Skipta skal 70% byggðakvóta byggðarlagsins hlutfallslega miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið á tímabilinu 1. september 2021 til 31. ágúst 2022. Ekkert skip fær þó meira en 35% af þeim 70% sem skipt er samkvæmt lönduðum afla. |
|
b) |
Í 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist „til vinnslu innan hlutaðeigandi byggðarlaga“ og verður: til vinnslu innan sveitarfélagsins. |
|
c) |
Við 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsl. svohljóðandi: Þó er vinnsluaðila heimil jöfn skipti, miðað við þorskígildisstuðul, á tegundum við annan vinnsluaðila, og komi þá slík fyrirætlan fram í þeim samningi sem eigandi fiskiskips gerir við fiskkaupanda, og skal sveitarstjórn árita samninginn til staðfestingar. |
Fjallabyggð (breyting á viðmiðum um úthlutun, vinnsluskylda innan sveitarfélags).
Ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022 gilda um úthlutun byggðakvóta Ólafsfjarðar og Siglufjarðar með eftirfarandi breytingum:
|
a) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi sveitarfélags á tímabilinu 1. september 2021 til 31. ágúst 2022, þó að hámarki 80 þorskígildistonn á fiskiskip. |
|
b) |
Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli af fiskiskipum sem landað er í sveitarfélagi, en þau eru ekki skráð innan viðkomandi sveitarfélags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr. |
|
c) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2022 til 31. ágúst 2023. |
Grýtubakkahreppur (breyting á viðmiðum um úthlutun).
Ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022 gilda um úthlutun byggðakvóta Grenivíkur með eftirfarandi breytingum:
|
a) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt þannig að 1/3 hluti byggðakvótans skiptist jafnt milli þeirra skipa sem sækja um og 2/3 hlutum skal skipt í hlutfalli við úthlutað aflamark sömu skipa 1. september 2022. |
Norðurþing (breyting á viðmiðum um úthlutun, vinnsluskylda innan sveitarfélags).
Ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022 gilda um úthlutun byggðakvóta Kópaskers og Raufarhafnar með eftirfarandi breytingum:
|
a) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2021 til 31. ágúst 2022. |
|
b) |
Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli sem landað er í sveitarfélagi úr fiskiskipum sem ekki eru skráð innan viðkomandi sveitarfélags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr. |
|
c) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2022 til 31. ágúst 2023. |
Snæfellsbær (breyting á viðmiðum um úthlutun, löndunarskylda innan sveitarfélags).
Ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022 gilda um úthlutun byggðakvóta Arnarstapa, Hellissands, Ólafsvíkur og Rifs með eftirfarandi breytingum:
|
a) |
Í 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist „í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags“ og verður: í þorskígildum talið innan viðkomandi sveitarfélags. |
|
b) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan sveitarfélagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2022 til 31. ágúst 2023. |
Suðurnesjabær vegna Garðs (breyting á viðmiðum um úthlutun, löndunarskylda innan sveitarfélags, vinnsluskylda innan sveitarfélags).
Ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022 gilda um úthlutun byggðakvóta Garðs með eftirfarandi breytingum:
|
a) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2021 til 31. ágúst 2022. |
|
b) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan sveitarfélagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta Garðs og til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2022 til 31. ágúst 2023. |
Sveitarfélagið Hornafjörður (breyting á viðmiðum úthlutunar).
Ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022 gilda um úthlutun byggðakvóta Hafnar með eftirfarandi breytingum:
|
a) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem upp¬fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstök¬um sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal 15% úthlutaðs byggðakvóta skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar og 85% skal skipt hlutfallslega, til sömu skipa, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2021 til 31. ágúst 2022. |
Sveitarfélagið Ölfus (breyting á viðmiðum um úthlutun).
Ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022 gilda um úthlutun byggðakvóta Þorlákshafnar með eftirfarandi breytingum:
|
a) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, á þann veg að 35% byggðakvóta Þorlákshafnar skal skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar en 65% byggðakvótans í Þorlákshöfn skal skipt hlutfallslega á sömu skip, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, á tímabilinu 1. september 2021 til 31. ágúst 2022. |
Vesturbyggð (breyting á viðmiðum úthlutunar, afmörkun landaðs afla, vinnsluskylda innan sveitarfélags).
Ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022 gilda um úthlutun byggðakvóta Bíldudals, Brjánslækjar og Patreksfjarðar með eftirfarandi breytingum:
|
a) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega, af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2021 til 31. ágúst 2022. |
|
b) |
Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli af fiskiskipum sem landað er í sveitarfélagi, en þau eru ekki skráð innan viðkomandi sveitarfélags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr. |
|
c) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2022 til 31. ágúst 2023. |
2. gr.
Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 13. mars 2023.
Svandís Svavarsdóttir.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.
|