1. gr.
Eftirfarandi breyting verður á fylgiskjali reglugerðarinnar:
Í 2. kafla, Brjóstavandamál, lið nr. 49 er gerð breyting á afmörkun/skilyrðum fyrir greiðsluþátttöku. Í stað „Ekki greiðsluþátttaka, sjá þó undantekningu í lið nr. 50“ kemur:
- Ef til staðar er sýking í vasa sem geymir brjóstapúða.
- Ef til staðar er krónísk bólga umhverfis brjóstapúða.
- Ef staðfest er rof á brjóstapúða sem leitt hefur til leka úr púðanum og út fyrir þá bandvefshimnu (extracapsular) sem myndast utan um brjóstapúðann. Á þannig ekki við þegar rof á brjóstapúða uppgötvast í aðgerð þegar opnað er inn fyrir bandvefshimnuna (intracapsular).
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 17.-19. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar og 2. mgr. 6. gr. laga nr. 55/2009 um sjúkraskrár, öðlast gildi 1. desember 2023.
Heilbrigðisráðuneytinu, 3. nóvember 2023.
Willum Þór Þórsson.
|