1. gr.
Jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóða.
Stuðla skal að því að mismunandi örorkubyrði lífeyrissjóða verði jöfnuð eins og nánar greinir í reglugerð þessari. Ríkissjóður veitir árlegu fjárframlagi til lífeyrissjóða til þess að ná því markmiði samkvæmt ákvæðum VI. kafla laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum.
Í samræmi við VI. kafla laga nr. 113/1990, skal fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2017 nema 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds skv. III. kafla laga nr. 113/1990. Framlagið skal byggjast á upplýsingum ríkisreiknings um áætlaðan gjaldstofn tryggingagjalds næstliðins árs.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið annast úthlutun og greiðslu framlags til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða samkvæmt reglugerð þessari.
2. gr.
Skipting framlagsins milli lífeyrissjóða.
Framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða skal skipt milli lífeyrissjóða með eftirfarandi hætti:
- Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í heildarörorkulífeyrisgreiðslum allra lífeyrissjóða á næstliðnu ári.
- Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í skuldbindingum lífeyrissjóða til greiðslu örorkulífeyris umfram 10% af heildarlífeyrisskuldbindingum sjóðanna í framtíðinni vegna væntanlegra iðgjalda miðað við tryggingafræðilega stöðu lífeyrissjóða við lok næstliðins árs. Nú hefur lífeyrissjóður nýtt heimild samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, til þess að ákveða lágmark tryggingaverndar þannig að iðgjaldi sé varið að hluta til öflunar lífeyrisréttinda í séreign og skal þá verðmæti iðgjaldsgreiðslna vegna réttinda sem aflað er í séreign talið til skuldbindinga sjóðsins í framtíðinni þegar fundin er hlutdeild sjóðsins skv. 1. málsl.
- Meðaltalshlutfall skv. 1. og 2. tölul. myndar hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.
3. gr.
Úthlutun fjárframlags árið 2017.
Samkvæmt 19. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, skal fjárframlag til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2017 renna til lífeyrissjóða sem hafa starfsleyfi frá fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. ákvæði laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Áætlaður gjaldstofn tryggingagjalds árið 2016 nemur samkvæmt ríkisreikningi 2016 samtals kr. 1.255.856.982.859 og er áætlað fjárframlag ársins 2016 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða því með vísan til 1. gr. samtals kr. 4.081.535.194 og skiptist það milli lífeyrissjóða sem hér segir:
Lífeyrissjóður |
Fjárhæð kr. |
Hlutfall |
Almenni lífeyrissjóðurinn |
40.243.937 |
0,986% |
Birta lífeyrissjóður |
153.853.469 |
3,770% |
Eftirlaunasjóður FÍA |
9.999.761 |
0,245% |
Eftirlaunasjóður Reykjanesbæjar |
2.081.583 |
0,051% |
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L050EsH |
5.469.257 |
0,134% |
Eftirlaunasj. starfsm. Útvegsbanka Íslands |
653.046 |
0,016% |
Festa lífeyrissjóður |
414.459.491 |
10,155% |
Frjálsi lífeyrissjóðurinn |
158.445.196 |
3,882% |
Gildi lífeyrissjóður |
1.517.780.085 |
37,187% |
Íslenski lífeyrissjóðurinn |
25.019.811 |
0,613% |
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L140LsA |
2.673.406 |
0,066% |
Lífeyrissjóður bankamanna-aldur |
18.489.354 |
0,453% |
Lífeyrissjóður bankamanna-hlutfall |
16.836.333 |
0,413% |
Lífeyrissjóður bænda |
15.020.050 |
0,368% |
Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga |
26.652.425 |
0,653% |
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L510LsN |
346.930 |
0,009% |
Lífeyrissjóður Rangæinga |
27.489.140 |
0,674% |
Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarkaupstaðar |
3.387.674 |
0,083% |
Lífeyrissjóður starfsm. Búnaðarbanka Íslands hf. |
4.816.212 |
0,118% |
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L600LsH |
1.693.837 |
0,042% |
Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar |
2.979.521 |
0,073% |
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar |
22.815.782 |
0,559% |
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A |
215.300.981 |
5,275% |
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B |
125.241.907 |
3,069% |
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A |
82.140.896 |
2,013% |
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V |
16.489.402 |
0,404% |
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L700LsV |
2.265.252 |
0,056% |
Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands |
1.510.168 |
0,037% |
Lífsverk lífeyrissjóður |
6.673.310 |
0,164% |
Lífeyrissjóður verslunarmanna |
553.456.172 |
13,560% |
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja |
88.752.983 |
2,175% |
Stapi lífeyrissjóður |
439.234.410 |
10,762% |
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda |
79.263.413 |
1,942% |
Samtals |
4.081.535.194 |
100,000% |
Við greiðslu fjárframlags ársins 2018, í október 2018, skal endurreikna, og leiðrétta ef þörf er á, fjárframlag ársins 2017 á grundvelli endurskoðaðra upplýsinga um gjaldstofn tryggingagjalds ársins 2016.
4. gr.
Leiðrétting fjárframlags ársins 2016.
Endurskoðaður gjaldstofn tryggingagjalds vegna ársins 2015 er kr. 1.121.300.877.550. Mismunur áætlaðs gjaldstofns tryggingagjalds ársins 2015 skv. 3. gr. reglugerðar nr. 1120/2016, um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2016 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða, og endurskoðaðs gjaldstofns tryggingagjalds vegna ársins 2015 er kr. 8.365.023.552 til hækkunar. Fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2016 nam 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds, sbr. lög nr. 177/2006, um breyting á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald. Leiðrétting fjárframlags ársins 2016, frá því sem það var ákvarðað með reglugerð nr. 1120/2016, nemur því samtals kr. 27.186.327 til hækkunar. Áætlað fjárframlag ársins 2017 eins og það er ákvarðað skv. 3. gr. hækkar um þær fjárhæðir sem tilgreindar eru í eftirfarandi töflu:
Lífeyrissjóður |
Fjárhæð kr. |
Hlutfall |
Almenni lífeyrissjóðurinn |
279.747 |
1,029% |
Birta lífeyrissjóður |
1.315.954 |
4,841% |
Eftirlaunasjóður FÍA |
82.510 |
0,304% |
Eftirlaunasjóður Reykjanesbæjar |
4.214 |
0,016% |
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L050EsH |
33.439 |
0,123% |
Eftirlaunasj. starfsm. Útvegsbanka Íslands |
6.389 |
0,024% |
Festa lífeyrissjóður |
2.656.920 |
9,773% |
Frjálsi lífeyrissjóðurinn |
1.247.445 |
4,590% |
Gildi lífeyrissjóður |
9.786.942 |
36,000% |
Íslenski lífeyrissjóðurinn |
123.154 |
0,453% |
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L140LsA |
17.399 |
0,064% |
Lífeyrissjóður bankamanna-aldur |
135.116 |
0,497% |
Lífeyrissjóður bankamanna-hlutfall |
121.387 |
0,447% |
Lífeyrissjóður bænda |
108.337 |
0,399% |
Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga |
184.323 |
0,678% |
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L510LsN |
3.670 |
0,014% |
Lífeyrissjóður Rangæinga |
184.051 |
0,667% |
Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarkaupstaðar |
24.196 |
0,089% |
Lífeyrissjóður starfsm. Búnaðarbanka Íslands hf. |
23.516 |
0,087% |
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L600LsH |
10.331 |
0,038% |
Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar |
18.215 |
0,067% |
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar |
179.022 |
0,660% |
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A |
1.508.026 |
5,547% |
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B |
823.746 |
3,030% |
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A |
497.646 |
1,831% |
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V |
157.681 |
0,580% |
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L700LsV |
18.894 |
0,070% |
Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands |
12.506 |
0,046% |
Lífsverk lífeyrissjóður |
64.296 |
0,237% |
Lífeyrissjóður verslunarmanna |
3.592.401 |
13,214% |
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja |
596.876 |
2,196% |
Stapi lífeyrissjóður |
2.845.865 |
10,468% |
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda |
522.113 |
1,921% |
Samtals |
27.186.327 |
100,000% |
5. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 22. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Jafnframt er felld úr gildi eldri reglugerð nr. 1120/2016 sama efnis.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 7. desember 2017.
F. h. r.
Haraldur Steinþórsson.
Anna V. Ólafsdóttir.
|