1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 125. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/259 frá 10. febrúar 2025 um breytingu á XIII. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færsluna fyrir Japan í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af nýju kjöti af hóf- og klaufdýrum til Sambandsins.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerðin sem nefnd er í 1. gr. er birt á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 11/2025.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995, lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994, og lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 7. mars 2025.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.
|