Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 121/2024

Nr. 121/2024 17. október 2024

FORSETAÚRSKURÐUR
um breytingu á forsetaúrskurði nr. 32/2024, um skiptingu starfa ráðherra.

Forseti Íslands
gjörir kunnugt:

 

Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar, laga um Stjórnarráð Íslands, forsetaúrskurðar um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti og forseta­úrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands er hér með gerð eftirfarandi breyting á forsetaúrskurði nr. 32/2024, um skiptingu starfa ráðherra:

 

1. gr.

3. gr. úrskurðarins orðast svo ásamt fyrirsögn:

Félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Bjarni Benediktsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir félags- og vinnumarkaðs­ráðuneyti skv. 3. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnar­ráði Íslands og ber embættisheitið félags- og vinnumarkaðsráðherra.

 

2. gr.

7. gr. úrskurðarins orðast svo ásamt fyrirsögn:

Innviðaráðherra.

Sigurður Ingi Jóhannsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir innviðaráðuneytið skv. 7. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið innviðaráðherra.

 

3. gr.

8. gr. úrskurðarins orðast svo ásamt fyrirsögn:

Matvælaráðherra.

Bjarni Benediktsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir matvælaráðuneytið skv. 8. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættis­heitið matvælaráðherra.

 

4. gr.

Forsetaúrskurður þessi öðlast þegar gildi.

 

Gjört á Bessastöðum, 17. október 2024.

 

Halla Tómasdóttir.
(L. S.)

Bjarni Benediktsson.


A deild - Útgáfud.: 17. október 2024