1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 17. tölul., svohljóðandi:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1250 frá 11. júlí 2017 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008 að því er varðar að taka bragðefnið 4,5-epoxýdek-2(trans)-enal af skrá Sambandsins. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 11/2018, frá 9. febrúar 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 14, frá 8. mars 2018, bls. 205.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. mars 2018.
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.
|