1. gr.
Af hundum og köttum í Fjallabyggð skal Fjallabyggð innheimta gjald samkvæmt gjaldskrá þessari, sem ætlað er að standa undir kostnaði við framkvæmd samþykktar um hundahald, nr. 631/2012 í Fjallabyggð og samþykktar um kattahald, nr. 636/2012 í Fjallabyggð.
2. gr.
Hundaleyfisgjald greiðist árlega 16.100 kr. á hvern hund.
Kattaleyfisgjald greiðist árlega 14.100 kr. á hvern kött.
Innifalinn í leyfisgjaldi er sá kostnaður sem verður vegna umfjöllunar, umsýslu, auglýsinga, skráningar, heilbrigðisskoðunar dýralæknis, ormahreinsunar og aflesara. Allur annar kostnaður sem til fellur vegna hunda og katta, skal greiddur af leyfishafa.
Um vexti af vangreiddum gjöldum samkvæmt gjaldskrá þessari gilda almennar reglur. Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.
3. gr.
Handsömunargjald, samkvæmt 11. gr. samþykktar um hundahald í Fjallabyggð og 14. gr. samþykktar um kattahald í Fjallabyggð skal vera 8.300 kr. Ef vista þarf hund eða kött yfir nótt, skal greiða vörslugjald að fjárhæð 1.350 kr. fyrir hvern dag umfram fyrsta sólarhringinn. Að auki skal greiða allan útlagðan kostnað Fjallabyggðar vegna hunds eða kattar.
Eigandi hunds eða kattar getur fengið hann afhentan, að aflokinni skráningu og gegn framvísun á staðfestingu fyrir greiðslu handsömunargjalds auk annars áfallins kostnaðar vegna brotsins.
4. gr.
Gjaldskrá þessa skal bæjarstjórn taka til endurskoðunar við gerð fjárhagsáætlunar ár hvert.
5. gr.
Gjaldskrá þessi er sett á grundvelli 59. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, og öðlast hún gildi 1. janúar 2025. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1542/2023 fyrir hundahald og kattahald í Fjallabyggð.
Samþykkt í bæjarstjórn Fjallabyggðar 12. desember 2024.
Fjallabyggð, 13. desember 2024.
Sigríður Ingvarsdóttir bæjarstjóri.
|