1. gr.
5. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
Tónlistarskólum er heimilt að sinna einstaklingskennslu með 2 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks og nemenda. Ekki skulu vera fleiri en 10 starfsmenn í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli hópa, en þegar þeir geta ekki viðhaldið 2 metra nálægðartakmörkun hver gagnvart öðrum eða gagnvart nemendum skulu starfsmenn nota andlitsgrímu.
Öll tónlistarkennsla barna á leik- og grunnskólaaldri er heimil með sömu takmörkunum og gildir um íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf, þ.e. að hámarki 50 börn á leikskólaaldri og í 1.–4. bekk og að hámarki 25 í 5.–10. bekk. Ekki þarf að halda sömu hópaskiptingu og er í leik- og grunnskólastarfi. Um nemendur í 8.–10. bekk gildir 2 metra nálægðartakmörkun en ef víkja þarf frá henni skulu andlitsgrímur notaðar, ef unnt er.
Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma í tónlistarskóla nema brýna nauðsyn beri til. Aðrir en starfsmenn sem koma í tónlistarskóla, svo sem vegna vöruflutninga, skulu bera andlitsgrímur.
Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar og búnað eftir hvern dag og milli einstaklinga og hópa í sama rými.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur þegar gildi og gildir til og með 1. desember 2020.
Heilbrigðisráðuneytinu, 20. nóvember 2020.
F. h. r.
Ásta Valdimarsdóttir.
|