1. gr.
Bæjarstjórn Akureyrar er heimilt að leggja á sérstakt sorphirðugjald og er gjaldskrá þessi sett skv. 13. gr. samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Akureyrarbæ nr. 1449/2024.
2. gr.
Sorphirðugjald skal lagt á allar íbúðir sem virtar eru í fasteignamati. Einnig skal sorphirðugjald lagt á aukaíbúðir í húsum sem virtar eru í fasteignamati sem óskiptar eignir.
Sorphirðugjaldinu er ætlað að standa undir kostnaði við sorphirðu, sorpeyðingu og urðun sorps, ásamt kostnaði við rekstur endurvinnslustöðva og grenndarstöðva.
Sorphirðugjald greiðist með fasteignagjaldi og eru gjalddagar þess hinir sömu og gjalddagar fasteignagjalda.
Dráttarvextir greiðast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga auk áfallins innheimtukostnaðar.
Sorphirðugjald skal tryggt með lögveði í viðkomandi fasteign í tvö ár frá gjalddaga.
3. gr.
Árgjald sorphirðu fyrir íbúðir í Hrísey og Grímsey er 52.000 kr.
Fastagjald sorphirðu á hverja íbúð á Akureyri er 23.000 kr. á ári. Við það bætist árgjald eða losunargjald samkvæmt 4. gr. gjaldskrár þessarar.
Innifalið í sorphirðugjaldi er móttaka á gjaldskyldu flokkuðu sorpi til eyðingar og endurvinnslu, á endurvinnslustöð gámasvæðis að Réttarhvammi, gegn framvísun 16 skipta klippikorts, sem fæst árlega. Hvert klipp gildir fyrir 0,25 m³, sem samsvarar 240 l heimilistunnu. Aukakort fyrir einstaklinga kosta: 16 skipta klippikort 14.100 kr., 8 skipta klippikort 7.050 kr.
Sérstakt gjald er lagt á móttöku á malbiksbroti, og móttöku á múr- og glerbroti, ef það er umfram eðlilega heimilislosun, sbr. 5. gr.
Umsýslugjald vegna breytingar á þjónustu er 4.000 kr. Gjald fyrir aukalosun tunnu (innan tveggja daga) er 5.000 kr. Gjald fyrir aukalosun gáms (innan tveggja daga) er 4.000 kr. og við það gjald bætist losunargjald.
4. gr.
Árgjald fyrir tunnur: |
|
240 l tvískipt tunna fyrir blandaðan úrgang (60%) og matarleifar (40%) |
37.400 kr. |
240 l tvískipt tunna fyrir pappa (60%) og plast (40%) |
18.700 kr. |
140 l tunna fyrir blandaðan úrgang |
28.600 kr. |
240 l tunna fyrir blandaðan úrgang |
35.750 kr. |
360 l tunna fyrir blandaðan úrgang |
45.100 kr. |
660 l tunna fyrir blandaðan úrgang |
81.400 kr. |
140 l tunna fyrir matarleifar |
17.600 kr. |
240 l tunna fyrir matarleifar |
19.800 kr. |
240 l tunna fyrir pappa og pappír |
11.550 kr. |
360 l tunna fyrir pappa og pappír |
12.650 kr. |
660 l tunna fyrir pappa og pappír |
23.650 kr. |
240 l tunna fyrir plast |
10.450 kr. |
360 l tunna fyrir plast |
11.550 kr. |
660 l tunna fyrir plast |
21.450 kr. |
|
|
Losunargjald fyrir hverja losun gáma. |
|
2,5 m³ yfirborðsgámur fyrir almennan úrgang |
10.000 kr. |
2,5 m³ djúpgámur fyrir almennan úrgang |
8.000 kr. |
3 m³ djúpgámur fyrir almennan úrgang |
9.000 kr. |
5 m³ djúpgámur fyrir almennan úrgang |
13.000 kr. |
1,5 m³ yfirborðsgámur fyrir matarleifar |
4.500 kr. |
0,8 m³ djúpgámur fyrir matarleifar |
4.000 kr. |
2,5 m³ djúpgámur fyrir matarleifar |
4.500 kr. |
3 m³ djúpgámur fyrir matarleifar |
5.000 kr. |
2,5 m³ yfirborðsgámur fyrir pappír og pappa |
9.500 kr. |
2,5 m³ djúpgámur fyrir pappír og pappa |
5.500 kr. |
3 m³ djúpgámur fyrir pappír og pappa |
6.000 kr. |
5 m³ djúpgámur fyrir pappír og pappa |
8.000 kr. |
2,5 m³ yfirborðsgámur fyrir plast |
9.000 kr. |
2,5 m³ djúpgámur fyrir plast |
5.000 kr. |
3 m³ djúpgámur fyrir plast |
5.500 kr. |
5 m³ djúpgámur fyrir plast |
7.500 kr. |
5. gr.
Fyrir móttöku á malbiksbroti á Malbikunarstöð Akureyrar skal greiða 7,30 kr./kg vegna kostnaðar við endurvinnslu og geymslu.
Fyrir losun úrgangs vegna götusópunar (olíuskilja) skal greiða 7,30 kr./kg.
Fyrir móttöku á múr- og glerbroti, sem er umfram eðlilega heimilislosun, að Sjafnarnesi 2-4, Akureyri, skal greiða 8,81 kr./kg vegna kostnaðar við endurvinnslu og geymslu.
Fyrir móttöku á malbiksbroti og múr- og glerbroti frá öðrum sveitarfélögum eða aðilum með lögheimili utan Akureyrar skal greiða 77,70 kr./kg.
Ef úrgangur er blanda af múr og gleri eða í honum er annar úrgangur skal greiða 77,70 kr./kg.
6. gr.
Til þess að fá aðgang að Jaðri, moldarlosunarsvæði, skal greiða árgjald og er það 5.000 kr.
Gjaldskrá að Jaðri miðast við losun fyrir einn mánuð í senn.
Lágmarkslosunargjald fyrir hvern mánuð er 6.600 kr.
Ef 2-15 m³ eru losaðir innan mánaðar greiðast 3.300 kr. fyrir hvern losaðan m³, lágmarksgjald er þó alltaf 6.600 kr.
Sé losun meiri en 15 m³ innan mánaðar greiðist 415 kr. fyrir hvern losaðan m³, lágmarksgjald er þó alltaf 6.600 kr.
7. gr.
Gjaldskrá þessi, sem samþykkt var af bæjarstjórn Akureyrarbæjar 5. desember 2024, með vísan til samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Akureyrarbæ nr. 1449/2024, 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs, staðfestist hér með til að öðlast gildi við birtingu. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá fyrir sorphirðu í Akureyrarbæ nr. 31/2020.
F.h. Akureyrarbæjar, 9. janúar 2025,
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður/persónuverndarfulltrúi.
|