Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1345/2024

Nr. 1345/2024 26. nóvember 2024

REGLUR
um gagnaskil fjármálafyrirtækja.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem reikna út eiginfjárgrunn, eiginfjárkröfur, stórar áhættu­skuldbindingar, vogunarhlutfall, hlutfall kvaðbundinna eigna, lausafjárhlutfall og hlutfall stöðugrar fjármögnunar í samræmi við lög um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.

 

2. gr.

Tíðni og form gagnaskila fjármálafyrirtækja.

Fjármálafyrirtæki, sem skylt er að veita fjármálaeftirlitinu upplýsingar í samræmi við 7. hluta A reglugerðar (ESB) nr. 575/2013, sbr. 1. gr. c laga nr. 161/2002, skal skila gögnum á því formi sem mælt er fyrir um í reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/451, með síðari breytingum, sbr. 3. gr. Gögnum skal skila með þeirri tíðni sem tilgreind eru í reglugerðinni.

Sértækum gögnum um markaðsáhættu skal skila í samræmi við reglugerð (ESB) 2021/453, sbr. 3. gr.

 

3. gr.

Innleiðing reglugerða.

Með vísan til 2. gr. gilda eftirtaldar reglugerðir hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/451 frá 17. desember 2020, um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar skýrslugjöf stofnana til eftirlitsyfirvalda og um niður­fellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 680/2014, sem tekin var upp í EES-samn­inginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 301/2021 frá 29. október 2021 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 19 frá 29. febrúar 2024, bls 36.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/453 frá 15. mars 2021 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar sérstakar skýrslugjafarkröfur fyrir markaðsáhættu, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 301/2021 frá 29. október 2021 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 19 frá 29. febrúar 2024, bls. 36.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/185 frá 10. febrúar 2022 um leiðréttingu á tungumálaútgáfum reglugerðar (ESB) 2021/451 um tæknilega fram­kvæmdar­staðla fyrir beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar skýrslugjöf stofnana til eftirlitsyfirvalda og um niðurfellingu á framkvæmdar­reglugerð (ESB) nr. 680/2014, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 181/2022 frá 10. júní 2022 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 66 frá 13. október 2022, bls. 26. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63 frá 7. september 2023, bls. 52-53.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1994 frá 21. nóvember 2022 um breytingar á reglugerð (ESB) 2021/451 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar skýrslugjöf um eigið fé, kvaðir á eignum og laust fé og skýrslugjöf í þeim tilgangi að skilgreina kerfislega mikilvægar stofnanir á alþjóðavísu, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 321/2023 frá 8. desember 2023 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 48 frá 13. júní 2024, bls. 47.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/855 frá 15. mars 2024 um breytingar á reglugerð (ESB) 2021/451 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar reglur um skýrslugjöf vegna eftirlits með fastvaxtaáhættu, sem tekin var upp í EES-samn­inginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 241/2024 frá 25. október 2024.

Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 57/2015, vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerðum fram­kvæmda­stjórnarinnar (ESB) 2021/451, 2021/453, 2022/1994 og 2024/855 í Stjórnartíðindum Evrópu­sambandsins (e. Official Journal of the European Union):

  1. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32021R0451, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 97, þann 19. mars 2021, bls. 1-1955;
  2. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32021R0453, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 89, þann 16. mars 2021, bls. 3-14;
  3. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32022R1994, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 329, þann 22. desember 2022, bls. 1-694;
  4. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32024R0855, birt í OJ deild L, undirdeild R, 2024/855, þann 24. júní 2024.

 

4. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 73., 79. og 80. tölul. 2. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002, öðlast þegar gildi. Við gildistöku þeirra falla úr gildi reglur nr. 323/2024 um gagnaskil fjármálafyrirtækja.

 

Seðlabanka Íslands, 26. nóvember 2024.

 

  Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 28. nóvember 2024