1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
|
3.73 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/2871 frá 18. desember 2023 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.73. |
|
4.81 |
Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/2873 frá 18. desember 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.81. |
|
7.33 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/2874 frá 18. desember 2023 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.33. |
|
8.25 |
Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/2878 frá 18. desember 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.25. |
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 1. febrúar 2024.
Bjarni Benediktsson.
Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|