1. gr. Af öllum fasteignum í Seltjarnarneskaupstað, sem liggja við vegi eða opin svæði, þar sem holræsalagnir liggja, skal greiða árlegt fráveitugjald til bæjarsjóðs Seltjarnarneskaupstaðar. 2. gr. Álagningarstofn fráveitugjalds skv. 1. gr. skal vera 0,120% af fasteignamati allra húsa og lóða skv. lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001 með síðari breytingum. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekkert fráveitugjald. 3. gr. Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og bæjarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts. Skráður eigandi fasteignar skv. matsskrá Fasteignamats ríkisins eða skráður umráðandi ber ábyrgð á greiðslu fráveitugjalds. 4. gr. Húseigandi og lóðarhafi, lóðareigandi, ef um eignarlóð er að ræða bera ábyrgð á greiðslu fráveitugjalds, og er gjaldið tryggt með lögveði í lóð og mannvirkjum. 5. gr. Við álagningu árlegs fráveitugjalds getur sveitarstjórn með einfaldri samþykkt sinni nýtt sér heimild í 2. mgr. 87. gr. vatnalaganna, sbr. lög nr. 137/1995, um niðurfellingu eða lækkun til tekjulítilla elli- og örorkulífeyrisþega. 6. gr. Gjaldskrá þessi, sem samin er samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar um álagningu fráveitugjalds frá 12. september 2012 skv. 15. gr. laga nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitu og skv. 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, öðlast gildi 1. nóvember nk. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1168/2010 með síðari breytingum. Seltjarnarnesi, 15. september 2012. Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri. |