Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 922/2021

Nr. 922/2021 11. ágúst 2021

REGLUGERÐ
um sérstaka úthlutun til skel- og rækjubáta.

1. gr.

Þar sem takmarkaðar rækjuveiðar voru stundaðar í Ísafjarðardjúpi og Arnarfirði og engar rækjuveiðar voru stundaðar á Húnaflóa, Skagafirði, Skjálfanda, Öxarfirði og Norðurfjörðum Breiða­fjarðar á fiskveiðiárinu 2020/2021, og á Eldeyjarsvæði almanaksárið 2020, skal á fiskveiðiárinu 2021/2022 úthluta aflamarki sem nemur samtals 869 þorskígildistonnum til báta, sem hafa hlutdeild í rækju á áðurgreindum svæðum.

Við útreikning uppbóta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla rækju­vertíðanna 1996/1997 - 2005/2006 að frádregnum rækjuafla fiskveiðiársins 2020/2021 á við­komandi svæði. Verðmætastuðullinn fyrir rækju er 0,52, miðað við þorskígildi og koma 140 þorsk­ígildistonn í hlut báta frá Arnarfirði, 120 þorskígildistonn í hlut báta í Ísafjarðardjúpi, 148 þorsk­ígildistonn í hlut báta við Húnaflóa, 153 þorskígildistonn í hlut báta við Skagafjörð, 70 þorskígildis­tonn í hlut báta á Skjálfanda, 201 þorskígildislest í hlut báta við Öxarfjörð, 23 þorskígildistonn í hlut báta á Eldeyjarsvæði og 14 þorskígildistonn í hlut báts í Norðurfjörðum Breiðafjarðar.

 

2. gr.

Þar sem engar hörpudisksveiðar voru stundaðar í Arnarfirði, Húnaflóa, Breiðafirði og Hvalfirði á fiskveiðárinu 2020/2021 skal á fiskveiðiárinu 2021/2022 úthluta aflamarki sem samtals nemur 983 þorskígildistonnum til báta, sem aflahlutdeild hafa í hörpudiski á áðurgreindum svæðum.

Við útreikning uppbóta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla áranna 1998 til 2007. Verðmætastuðullinn fyrir hörpudisk er 0,32, miðað við þorskígildi, og koma 7 þorskígildistonn í hlut báta frá Arnarfirði, 33 þorskígildistonn í hlut báta við Húnaflóa, 919 þorskígildistonn í hlut báta við Breiðafjörð og 24 þorskígildistonn í hlut báta við Hvalfjörð.

 

3. gr.

Úthluta skal uppbótum til einstakra báta á grundvelli þeirrar aflahlutdeildar sem þeir hafa í rækju og skel á viðkomandi svæði og miðast við aflahlutdeild eins og hún er 1. ágúst 2021. Upp­bæturnar skulu skiptast á eftirgreindar tegundir: Þorsk, ýsu, ufsa, steinbít, gullkarfa, keilu og löngu samkvæmt eftirfarandi töflu:

 

Tegundir Tonn upp úr sjó Þorskígildistonn
Þorskur 1.472           1.237          
Ýsa  275            208          
Ufsi 517           239          
Steinbítur 60              27          
Gullkarfi 191           128          
Keila    10             3          
Langa    24              10          
Samtals: 2.549           1.852          

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett, skv. 3. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, til að öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda 1. september 2020. Jafnframt fellur reglugerð nr. 730/2020, um sérstaka úthlutun til skel- og rækjubáta úr gildi frá 1. september 2021.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. ágúst 2021.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 11. ágúst 2021