I. KAFLI
Um reglu, velsæmi og almennt öryggi á almannafæri.
1. gr.
Með almannafæri er í samþykkt þessari átt við götur, vegi, gangstéttir, gangstíga, svæði ætluð til almenningsnota og staði sem opnir eru almenningi, svo sem kvikmyndahús, leikhús, samkomuhús, söfn, veitingastaði, verslanir, leiktækjastaði, bifreiðastöðvar, biðskýli og söluturna.
Með leiktækjastað er átt við stað þar sem aðgangur er veittur að leiktækjum, spilakössum, knattborðum, tölvum o.þ.h., gegn greiðslu.
2. gr.
Uppþot, áflog, óspektir eða önnur háttsemi sem raskar allsherjarreglu má ekki eiga sér stað á almannafæri og ekki mega menn þyrpast þar saman ef það tálmar umferð eða veldur vegfarendum óþægindum. Enginn má áreita aðra á almannafæri eða sýna þar af sér ósæmilega háttsemi.
3. gr.
Bannað er að hafast nokkuð það sem veldur ónæði eða raskar næturró manna.
Lögreglustjóri getur bannað notkun hátalara, hljómflutningstækja, hljóðfæra eða annars þess háttar á almannafæri, ef ástæða er til að ætla að notkunin valdi verulegu ónæði eða truflun.
Sveitarstjórn getur bannað neyslu áfengis á almannafæri á tilteknum tíma á tilteknum svæðum í þéttbýli. Slíka samþykkt skal tilkynna lögreglustjóra og birta almenningi.
4. gr.
Þegar fjölmenni safnast saman á almannafæri svo sem í eða við biðstöðvar almenningsvagna og leigubifreiða, miðasölur, banka, veitingastaði, verslanir eða aðra afgreiðslustaði, skal mynda röð þannig að þeir sem fyrstir koma fái fyrstir afgreiðslu.
5. gr.
Hver sá sem staddur er á almannafæri ber að segja til nafns síns, kennitölu og heimilis þegar lögregla krefst þess. Skylt er að hlýða fyrirmælum sem lögregla gefur s.s. vegna umferðarstjórnar eða til þess að halda uppi reglu á almannafæri.
6. gr.
Lögreglan getur vísað þeim mönnum í burtu af almannafæri, sem með háttsemi sinni valda vegfarendum eða íbúum í nágrenninu ónæði.
Sama á við um þá sem valda óspektum, hættu eða hneykslan á almannafæri sökum ölvunar eða af öðrum ástæðum.
7. gr.
Meðferð vatns við hvers konar þrif utandyra er óheimil nema í frostlausu veðri ef það veldur rennsli á gangstétt, gangstíg eða götu þannig að valdið geti hættu eða óþægindum.
Í götubrunna og göturæsi má ekki hella mengandi efnum svo sem spilliefnum eða efnum sem valdið geta mengun eða skemmdum í holræsakerfi.
Eiganda eða umráðamanni húss er skylt að fjarlægja af húsi sínu snjó og grýlukerti sem fallið geta niður og valdið hættu fyrir vegfarendur.
8. gr.
Öllum ber að gæta þess að ganga vel um á almannafæri og skemma þar ekki hluti sem ætlaðir eru til almenningsnota eða prýði. Þetta á einnig við þá hluta af húsum og öðrum mannvirkjum sem liggja að almannafæri.
Á mannvirki og hluti má ekki mála, teikna eða festa auglýsingar nema með leyfi eiganda eða umráðamanns.
Óheimilt er að reisa auglýsingaskilti á almannafæri nema með leyfi sveitarstjórnar. Sveitarstjórn skal tilkynna lögreglustjóra um slík leyfi. Uppfestar auglýsingar skulu hlutaðeigendur taka niður, þegar þær hafa fullnægt tilgangi sínum og hreinsa vel staðinn þar sem þær voru hafðar. Löglega uppfestar auglýsingar má enginn rífa niður eða gera ólæsilegar á annan hátt.
9. gr.
Sveitarstjórn getur sett umgengnisreglur um skemmtigarða, leikvelli, lystigarða, tjarnir, kirkjugarða og önnur opinber svæði, enda séu reglurnar festar upp við inngang eða á öðrum áberandi stað.
Hvorki má troða niður ræktaða bletti, grasreiti, blómabeð og limgerði á almannafæri né slíta þar upp blóm eða annan gróður.
Eigi má gista í tjöldum, húsbílum, hjólhýsum og tjaldvögnum á almannafæri í þéttbýli utan sérmerktra svæða.
Ofangreint á einnig almennt við um gistingu á almannafæri innan marka sveitarfélagsins. Óheimilt er að hafa gistingu í tjaldvögnum, fellihýsum, hjólhýsum, húsbílum og öðrum sambærilegum búnaði utan skipulagðra tjaldsvæða og utan þéttbýlis nema leyfi landeiganda komi þar til, sbr. lög um náttúruvernd nr. 60/2013 með síðari breytingum.
10. gr.
Tilkynna skal lögreglustjóra svo fljótt sem verða má um fyrirhugaðar hópgöngur, útifundi, tónleika og aðrar útisamkomur í því skyni að hann geti gert viðeigandi ráðstafanir varðandi stjórnun umferðar.
Lögreglustjóri getur breytt gönguleið eða samkomustað telji hann það nauðsynlegt.
11. gr.
Meðferð skotvopna á almannafæri er bönnuð nema með sérstakri undanþágu frá lögreglustjóra.
Ekki má á almannafæri ganga með logandi blys, kveikja í bálköstum né halda skoteldasýningar nema með leyfi lögreglustjóra.
12. gr.
Enga atvinnu sem tálmar umferð má reka á almannafæri.
Sveitarstjórn getur sett samþykktir um farandsölu og sölu á götum, torgum og öðrum stöðum.
13. gr.
Lögreglustjóri getur bannað öllum óviðkomandi, sem ekki eiga brýnt erindi, umferð út í skip sem liggja í höfn.
14. gr.
Ekki má gera jarðrask, svo sem skurði í gangstéttir, götur eða torg né raska þeim á annan hátt, nema með leyfi sveitarstjórnar. Skal sveitarstjórn við veitingu leyfis setja skilyrði sem nauðsynleg eru til að afstýra hættu fyrir vegfarendur og tilkynna leyfisveitingu til lögreglustjóra.
Að verki loknu skal leyfishafi færa það í samt lag sem raskað var.
Þegar gerður er skurður í gangstétt skal sá sem verkið vinnur sjá um að tryggja öryggi gangandi vegfarenda og annarra, svo sem með því að sjá fyrir göngubrautum og tryggja að vegfarendur séu aðvaraðir um farartálmann, t.d. með ljósum, glitmerkjum o.þ.h. þegar dimmt er. Slík verk skulu unnin þannig að sem minnstur farartálmi verði. Sé nauðsynlegt að loka gangstétt vegna framkvæmda skal hjáleið tryggð og afgirt frá umferð ökutækja innan þéttbýlismarka og annars staðar þar sem umferð er mikil.
Sveitarstjórn getur bannað umferð um götur að nokkru eða öllu leyti meðan á verki stendur eða skipað fyrir um hvernig umferð skuli hagað. Haft skal samráð við vegamálastjóra þegar það á við. Einnig getur sveitarstjórn ákveðið að skurðir í götur séu byrgðir og uppgröftur fjarlægður þannig að umferð sé óhindruð um götur á þeim tíma sem ekki er unnið, svo sem að næturlagi og um helgar. Þá getur sveitarstjórn, ef hún telur framkvæmdirnar dragast um of, látið setja í samt lag það sem raskað var, eftir atvikum á kostnað þeirra sem ábyrgð bera á framkvæmd.
Setja skal upp skilti og merkingar til leiðbeiningar fyrir ökumenn vegna framkvæmda sem truflað geta umferð. Sé fyrirsjáanlegt að framkvæmdir muni taka lengri tíma en 7 daga skal setja upp ítarlegri skilti þar sem fram koma upplýsingar um framkvæmdina, á hvers vegum hún er og hvað hún muni standa lengi.
Þá getur sveitarstjórn beint þeim fyrirmælum til ökumanna og eigenda ökutækja að þeir leggi ekki ökutækjum á tilteknum svæðum svo unnt sé að framkvæma hvers konar nauðsynlegar viðgerðir eða hreinsanir á götum. Tilmælin skulu tilkynnt með upplýsingaskiltum eða öðrum tryggum hætti. Sé slíkum tilmælum ekki sinnt getur sveitarstjórn látið flytja ökutæki á brott án frekari viðvörunar svo viðgerð eða hreinsun geti farið fram. Tilkynna skal eiganda ökutækis og lögreglu um brottflutninginn og hvar vitja má ökutækis, sé það ekki flutt aftur á sama stað eftir að viðgerð eða hreinsun lýkur.
15. gr.
Húseigendum eða umráðamönnum húseigna er skylt að hlíta fyrirmælum sveitarstjórnar um frágang girðinga o.þ.h. sem liggja að almannafæri. Einnig skal húsráðendum skylt að snyrta allan gróður, þ.m.t. trjágróður sem liggur að götum, gangstéttum og gangstígum, þannig að umferð vegfarenda sé óhindruð. Sveitarstjórn getur sett nánari reglur um skerðingu gróðurs. Hlíti húseigandi eða lóðarhafi ekki fyrirmælum sveitarstjórnar um frágang samkvæmt þessari grein er heimilt að láta vinna verkið á hans kostnað enda sé honum tilkynnt um það með hæfilegum fyrirvara.
Þegar hús eða annað mannvirki brennur eða það flutt brott, án þess að annað sé byggt í staðinn, er eiganda skylt að ganga svo frá hússtæðinu að ekki stafi af því hætta, óþrifnaður eða óprýði. Sama gildir um hús sem standa yfirgefin.
Þegar hús er byggt, rifið, endurbyggt eða flutt, er eiganda og/eða verktaka skylt að haga sér eftir þeim fyrirmælum sem sveitarstjórn gefur til að forðast farartálma, hættu eða óþægindi fyrir vegfarendur og skal eigandi og/eða verktaki setja upp skilti til leiðbeiningar eftir því sem við á. Við flutning húsa skal eigandi og/eða verktaki kalla til lögreglu eftir því sem umferðarlög kveða á um.
Girðingar sem hafa verið reistar vegna mannvirkjagerðar skal fjarlægja þegar þeirra er ekki lengur þörf.
Um öryggi á vinnusvæðum við almannafæri gilda ákvæði skipulagslaga og laga um mannvirki auk reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim og ákvæði laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum ásamt reglum settum á grundvelli þeirra.
16. gr.
Enginn má án leyfis húsráðanda láta fyrir berast á lóðum hans eða landi. Auk þess getur lögreglan bannað mönnum að hafast þar við ef hún telur að það geti valdið óþægindum eða hættu. Ekki má fara í híbýli manna í söluerindum ef húsráðandi leggur við því bann.
17. gr.
Enginn má fleygja rusli eða öðru þess háttar á almannafæri nema í þar til gerð ílát. Enginn má fleygja rusli eða öðru þess háttar á lóð eða land annars manns.
Hver sem það gerir skal flytja óhreinindin tafarlaust burt á sinn kostnað.
II. KAFLI
Um ökutæki, umferð o.fl.
18. gr.
Á almannafæri má ekki leggja eða setja neitt það sem hindrar umferð.
Á götum má ekki hindra umferð með skemmtunum eða leikjum nema með leyfi lögreglustjóra.
Bannað er að leggja ökutæki á gangstéttum. Lögreglustjóri getur, að fengnum tillögum sveitarstjórnar, veitt undanþágu frá ofangreindu.
Vöru- og flutningabifreiðum sem eru 5 tonn að leyfðri heildarþyngd eða meira og fólksflutningabifreiðum sem flytja mega 10 farþega eða fleiri, má ekki leggja á götum, íbúðarhúsalóðum eða almenningsbifreiðastæðum nema þau séu til þess ætluð. Bann þetta gildir einnig um hvers konar vinnuvélar og dráttarvélar án tillits til þunga þeirra.
Eigendum og umráðamönnum þessara ökutækja og vinnuvéla ber að nota sérstaklega merkt svæði, sem ætluð eru þessum tækjum eða fara að öðru leyti eftir fyrirmælum lögreglu um geymslu þeirra. Með bifreiðastæðum fyrir vöru- og flutningabíla, vinnuvéla- og hópferðabíla er átt við skammtímalagningu, en ekki geymslusvæði fyrir slík tæki.
Sveitarstjórn getur veitt undanþágu frá banni þessu og skal þá afmarka og merkja sérstaklega þá staði þar sem undanþága hefur verið veitt.
Lögreglustjóri getur bannað stöðu eftirvagna og tengivagna, s.s. hestaflutningavagna, hjólhýsa, dráttarkerra, báta og þess háttar tækja sem og húsbíla, á götum og almennum bifreiðastæðum sem þykja valda óþægindum, óþrifnaði eða hættu.
Heimilt er að undangenginni viðvörun, t.d. með álímingarmiða með aðvörunarorðum, að flytja burtu og taka í vörslu sveitarfélags ökutæki sem standa án skráningarnúmera á lóðum við almannafæri, götum og almennum bifreiðastæðum. Sama gildir um ökutæki sem skilin eru eftir á opnum svæðum. Tilkynna skal skráðum eiganda og/eða umráðamanni um flutninginn og skal hann bera kostnað vegna flutnings og vörslu ökutækisins.
19. gr.
Vélar kyrrstæðra bifreiða og vinnuvéla sem ekki eru í notkun er óheimilt að hafa í gangi eða skilja eftir í gangi lengur er nauðsynlegt er, svo komast megi hjá mengun og hávaða á almannafæri og annars staðar þar sem ætla má að slíkt valdi óþægindum.
20. gr.
Lögreglustjóri getur að fengnum tillögum sveitarstjórnar, takmarkað eða bannað umferð stórvirkra vinnuvéla, vörubifreiða eða annarra ökutækja á einstökum götum ef slík umferð er álitin hættuleg eða til sérstakra óþæginda fyrir aðra umferð eða íbúa.
Allur akstur torfærutækja, s.s. vélsleða og torfæruhjóla, er bannaður innan þéttbýlis. Sveitarstjórn getur þó heimilað undanþágu frá þessu ákvæði á afmörkuðum svæðum og skal sú ákvörðun tilkynnt lögreglustjóra.
21. gr.
Á og við götur eða vegi eða þar sem hætta stafar af, má ekki gera rennibrautir, renna sér á skíðum, hjólaskautum, hjólabrettum, skautum, sleðum eða iðka leiki, skemmtanir eða íþróttir þannig að hætta eða umferðartruflun geti hlotist af. Einnig er bannað að hanga í bifreiðum, dráttarvélum, vögnum eða öðrum farartækjum sem eru á ferð eða festa við þau sleða, handvagn eða annað sem óþægindum eða hættu getur valdið.
Lögreglustjóri getur heimilað skíða-, sleða- eða rennibrautir á vegi í alfaraleið og skulu þeir vegir sérstaklega merktir sem slíkir. Þar mega ekki aðrir fara með ökutæki en íbúar gatnanna eða menn í erindum þeirra og skal þá ýtrustu varúðar og tillitssemi gætt.
22. gr.
Ef ís á sjó eða vötnum þykir ekki nógu traustur getur lögreglustjóri bannað alla umferð um hann.
23. gr.
Þeir sem flytja farm um götur sveitarfélagsins skulu gæta þess vandlega að ganga þannig frá farminum að ekki valdi óþrifnaði eða hættu. Ef eitthvað hrynur niður við flutning, fermingu eða affermingu á almannafæri er stjórnanda flutningstækisins skylt að hreinsa það upp þegar í stað.
III. KAFLI
Um veitingastaði, skemmtanahald o.fl.
24. gr.
Um leyfi til rekstrar veitingastaða, útleigu samkomusala í atvinnuskyni og leyfi til skemmtanahalds gilda ákvæði laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra. Veitingastaði án áfengisveitinga (flokkur I) er heimilt að hafa opna allan sólarhringinn. Stafi íbúum í nágrenni slíks veitingastaðar ónæði af rekstrinum getur sveitarstjórn þó takmarkað afgreiðslutíma hans.
Ákveði sveitarstjórn ekki annað eru áfengisveitingar á umfangslitlum áfengisveitingastöðum (flokkur II) heimilar frá kl. 06.00 til kl. 23.00 alla daga. Með sama fyrirvara eru áfengisveitingar á umfangsmiklum áfengisveitingastöðum (flokkur III) heimilar frá kl. 06.00 til kl. 23.30 virka daga og til kl. 03.00 aðfaranætur laugardaga, sunnudaga og almennra frídaga.
Áfengisveitingastöðum skal lokað þegar heimiluðum áfengisveitingatíma lýkur og má ekki opna þá að nýju að morgni dags fyrr en a.m.k. tvær klukkustundir eru liðnar frá lokun. Allir gestir skulu hafa yfirgefið áfengisveitingastað eigi síðar en einni klukkustund eftir lokun hans.
Afgreiðslu- eða þjónustutími verslana og annarra þjónustufyrirtækja er frjáls að því marki sem heimilt er að lögum er gilda á hverjum tíma eða reglum sem settar eru samkvæmt þeim. Sveitarstjórn getur þó takmarkað afgreiðslu- eða þjónustutíma hjá einstökum aðilum ef starfsemin veldur nágrönnum eða vegfarendum ónæði.
25. gr.
Hver sá sem rekur veitinga- eða gististað, kvikmyndahús, leikhús eða annað samkomuhús eða heldur almenna skemmtun eða sýningu, skal sjá um að allt fari þar vel fram og starfsemin valdi ekki nágrönnum eða vegfarendum ónæði. Slík starfsemi skal háð sérstöku eftirliti lögreglu og er henni heimilt að fara um samkomusali og önnur húsakynni sem gestir eiga aðgang að. Á öllum gististöðum skal haldin nákvæm gestaskrá.
26. gr.
Enginn má reka leiktækjastað eða þess háttar starfsemi gegn borgun, nema með leyfi lögreglustjóra að fenginni umsögn sveitarstjórnar. Leyfi skal ekki veita til lengri tíma en fjögurra ára í senn. Leyfi skal bundið við nafn leyfishafa og rekstur á tilteknum stað. Ef leyfishafi brýtur gegn ákvæðum greinar þessarar eða reksturinn þykir ekki fara vel úr hendi getur lögreglustjóri svipt leyfishafa leyfinu enda hafi leyfishafi ekki sinnt áminningu um úrbætur. Börnum yngri en 14 ára er ekki heimill aðgangur að slíkum leiktækjastöðum nema í fylgd með forráðamönnum. Miða skal aldur við fæðingarár en ekki fæðingardag.
IV. KAFLI
Um götuspjöld og húsnúmer.
27. gr.
Sveitarstjórn ákveður nöfn á götum og lætur festa upp skilti með þeim, þar sem þurfa þykir, svo sem við gatnamót og á fasteignir.
Húseigendur skulu merkja hús sín með húsnúmeri og eftir atvikum bókstöfum, á götuhlið eða öðrum áberandi stað, vegfarendum og þjónustuaðilum til glöggvunar.
V. KAFLI
Um útivistartíma barna og ungmenna.
28. gr.
Um útivistartíma barna og ungmenna gilda ákvæði barnaverndarlaga og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra.
VI. KAFLI
Um búfjárhald og hundahald.
29. gr.
Búfjárhald er bannað í þéttbýli. Sama gildir um hundahald í þéttbýli. Sveitarstjórn getur kveðið á um annað fyrirkomulag í sérstökum samþykktum á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Um lausagöngu búfjár fer samkvæmt vegalögum og lögum um búfjárhald og þeim samþykktum sem sveitarfélagið setur um búfjárhald.
Umferð reiðhesta er bönnuð innan þéttbýlismarka annars staðar en á merktum reiðstígum nema með sérstöku leyfi eða samkvæmt samþykkt sveitarstjórnar.
VII. KAFLI
Um refsingar, kostnað, gildistöku o.fl.
30. gr.
Ef einhver lætur það ógert sem honum er skylt að gera samkvæmt lögreglusamþykkt þessari getur lögreglustjóri látið framkvæma það eða gert aðrar nauðsynlegar ráðstafanir til að hindra að vanrækslan valdi tjóni. Kostnaður sem leiðir af framkvæmdum og ráðstöfunum lögreglustjóra greiðist af þeim er ábyrgð ber á vanrækslunni.
31. gr.
Brot gegn samþykkt þessari varða sektum sbr. 6. gr. laga nr. 36, frá 18. maí 1988 um lögreglusamþykktir, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum eða reglugerðum.
Mál sem varða brot gegn ákvæðum samþykktar þessarar skal fara með að hætti laga um meðferð sakamála.
32. gr.
Lögreglusamþykkt þessi er sett samkvæmt heimild í 2. gr. laga nr. 36/1988, um lögreglusamþykktir, og öðlast þegar gildi.
Dómsmálaráðuneytinu, 12. febrúar 2018.
Sigríður Á. Andersen.
Haukur Guðmundsson.
|