Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1559/2023

Nr. 1559/2023 12. desember 2023

SAMÞYKKT
um gatnagerðargjald, byggingarleyfisgjöld, stofngjöld og önnur þjónustugjöld tengd skipulagi og framkvæmdum í Kópavogsbæ.

I. KAFLI

Byggingarleyfisgjald, stofngjald vatns- og fráveitu,
og önnur afgreiðslu- og þjónustugjöld umhverfissviðs.

1. gr.

Almenn ákvæði.

Við útgáfu byggingarleyfa, stöðuleyfa, vottorða, deiliskipulagsbreytinga, framkvæmdaleyfa eða vegna annarrar þjónustu sem umhverfissvið Kópavogsbæjar veitir, skal greiða þau gjöld sem gjaldskrá þessi kveður á um.

Heimilt er að taka gjald fyrir veitta þjónustu og verkefni umhverfissviðs, m.a. fyrir undirbúning, svo sem vegna nauðsynlegrar aðkeyptrar sérfræðiþjónustu, útgáfu byggingarleyfis, útgáfu stöðu­leyfa, útmælingu, eftirlit, úttektir, yfirferð hönnunargagna, breytingar á aðal- og deiliskipulagi, útgáfu framkvæmdaleyfa og vottorða sem byggingarfulltrúi lætur í té skv. lögum um mannvirki nr. 160/2010 og skipulagsfulltrúi skv. skipulagslögum nr. 123/2010. 

 

2. gr.

Byggingarleyfisgjald.

Greiða skal byggingarleyfisgjald fyrir hverja þá framkvæmd sem byggingarleyfi er gefið út fyrir.

Byggingarleyfisgjald er grunngjald að viðbættu gjaldi pr. m³ byggingar.

Byggingarleyfisgjald skal innheimt við útgáfu byggingarleyfis.

Þjónusta.

Lágmarks afgreiðslugjald við móttöku umsóknar 14.600 kr.
Rúmmetragjald fyrir öll hús 144 kr./m³

 

3. gr.

Byggingarréttargjald.

Greiða skal byggingarréttargjald af úthlutuðum lóðum í landi Kópavogsbæjar. Á þróunar- og þétt­ingarreitum skal semja um byggingarréttargjald sérstaklega áður en framkvæmdir hefjast. Jafnframt skal semja um byggingarréttargjald áður en framkvæmdir hefjast í tilvikum þar sem aukning á byggingarmagni leiðir af sér aukna innviðauppbyggingu á svæðum sem ekki eru skil­greind sem þróunarreitir.

Þegar lóðarhafi óskar eftir breytingu á notkun húsnæðis skal greitt byggingarréttargjald sam­kvæmt samkomulagi við samþykkt byggingarleyfis.

Þegar lóðarhafi óskar eftir auknu byggingarmagni á þegar byggðri lóð skal greitt bygg­ingar­réttar­gjald fyrir umfram byggingarmagn samkvæmt samkomulagi við samþykkt byggingarleyfis.

Byggingarréttargjald skal greitt eftir tegund húsnæðis sem hér segir:

Tegund húsnæðis.

Einbýlishús 34.537 kr./m² húss
Raðhús, parhús, tvíbýlishús og keðjuhús 37.414 kr./m² húss
Fjölbýli 46.048 kr./m² húss
Fjölbýli í vesturbæ 57.560 kr./m² húss
Atvinnuhúsnæði 11.512 kr./m² lóðar
Hesthús á Kjóavöllum 3.885 kr./m² lóðar
Annað húsnæði 11.512 kr./m² lóðar

 

4. gr.

Tengigjald fráveitu.

Tengigjald fráveitu skal innheimta af öllum fasteignum sem eru tengdar við fráveitu í eigu Kópavogs­bæjar. Skal gjaldið lagt á og innheimt við tengingu og vera sem hér segir:

Tvöföld lögn að lóðarmörkum 150 mm 455.000 kr./lóð

Gert er ráð fyrir einni tengingu á hverja lóð. Óski lóðarhafi eftir fleiri tengingum eða stærri lögn en 150 mm greiðist það skv. raunkostnaði. Við framkvæmdir í grónum hverfum þar sem tenging er ekki til staðar, aðstæður erfiðar sökum þrengsla eða lagnalegu, greiðir lóðarhafi raunkostnað við tengingu við fráveitukerfi.

 

5. gr.

Stofngjald vatnsveitu.

Tengigjald vatnsveitu skal innheimta af öllum fasteignum sem eru tengdar við vatnsveitu í eigu Kópavogsbæjar. Miðað er við eina lögn á hvert lóðarnúmer og að ídráttarrör hafi verið lagt af umsækjanda á frostfríu dýpi frá tengistað Kópavogsbæjar að inntaksstað. Skal gjaldið lagt á og innheimt við tengingu og vera sem hér segir:

32 mm heimæðar - grunngjald (ídráttarrör skal vera 50 mm) 292.000 kr.
  Viðbótargjald fyrir heimæð umfram 30 m 6.800 kr. pr. metra
40 mm heimæðar - grunngjald (ídráttarrör skal vera 63 mm) 423.500 kr.
  Viðbótargjald fyrir heimæð umfram 30 m 9.650 kr. pr. metra
50 mm heimæðar - grunngjald 606.000 kr.
  Viðbótargjald fyrir heimæð umfram 30 m 10.670 kr. pr. metra
63 mm heimæðar - grunngjald 869.000 kr.
  Viðbótargjald fyrir heimæð umfram 30 m 11.700 kr. pr. metra
90 mm heimæðar - grunngjald 1.455.000 kr. 
  Viðbótargjald fyrir heimæð umfram 30 m 21.400 kr. pr. metra
110 mm heimæðar - grunngjald 1.850.000 kr.
  Viðbótargjald fyrir heimæð umfram 30 m 30.000 kr. pr. metra

Um er að ræða almennt tengigjald á nýbyggingarsvæðum þar sem inntaksrými er samkvæmt skilmálum. Gjöldin bera ekki virðisaukaskatt. Stærri heimæðar en 110 mm eru gjaldfærðar sam­kvæmt raunkostnaði.

Við framkvæmdir á grónum svæðum og á þéttingarreitum þar sem búið er að ganga varanlega frá yfirborði eða varanlegar og fullnægjandi veitulagnir eru ekki komnar að lóðarmörkum greiðir umsækjandi samkvæmt kostnaðaráætlun eða raunkostnaði. Séu gerðar breytingar á skipulagi húss frá samþykktum teikningum eða gildandi skipulagi greiðir umsækjandi allan viðbótarkostnað sem af breytingum kann að hljótast. Ein tengigrind er innifalin í hverju tengigjaldi.

Byggingarvatn.

25 mm loki við lóðarmörk - grunngjald 166.850 kr.
  Daggjald 181 kr. pr. dag
Viðgerð eða breyting á tengingu 30.000 kr.

Byggingarvatn er ekki lagt né tengt á framkvæmdasvæði nema búið sé að greiða tengigjöld vatns­veitu.

 

6. gr.

Úttektir og útgáfa vottorða.

Fokheldisúttekt og fokheldisvottorð 45.500 kr.
Öryggisúttekt 45.500 kr.
Lokaúttekt:  
  Einbýlishús, raðhús og tvíbýlishús 45.500 kr.
  Fjölbýlishús, 5 íbúðir eða fleiri 81.000 kr.
Endurtekin lokaúttekt 22.700 kr.
  Þriðja yfirferð á gögnum frá hönnuði:  
  Einbýlishús, raðhús og tvíbýlishús 14.800 kr.
  Fjölbýlishús, allt að 4 íbúðum 23.000 kr.
  Fjölbýlishús, 5 íbúðir eða fleiri 44.000 kr.
Atvinnuhúsnæði og annað 44.000 kr.
Gjald pr. áfanga- og stöðuúttekt 13.700 kr.
Veðbókarvottorð vegna niðurrifs bygginga 2.300 kr.

 

7. gr.

Stöðuskoðun.

Einbýlishús, raðhús og tvíbýlishús 41.000 kr.
Fjölbýlishús, allt að 4 íbúðir 41.000 kr.
Fjölbýlishús, 5 íbúðir eða fleiri 57.500 kr.
Atvinnuhúsnæði og annað 57.500 kr.

 

8. gr.

Stöðuleyfi.

Afgreiðslugjald vegna umsóknar um stöðuleyfi eða brottflutnings 16.000 kr.
Stöðuleyfi skv. gr. 2.6 í byggingarreglugerð, 2-12 mánuðir 38.000 kr.

Ef kemur til brottflutnings á gámi eða öðrum lausafjármunum sem eru stöðuleyfisskyldir skv. gr. 2.6 í byggingarreglugerð greiðir eigandi gáms/lausafjármunar samkvæmt reikningi vörslusvipt­ingar­­aðila fyrir flutning og geymslu.

 

9. gr.

Önnur afgreiðslu og þjónustugjöld.

Greiða skal fyrir þjónustu og leyfisveitingar sem byggingarfulltrúi og umhverfissvið Kópavogs­bæjar veitir sem hér segir:

Tegund þjónustu.

Mælingargjald (fyrir allar byggingar) / mæling á lóð, húsi og greftri 71.000 kr.
Yfirferð eignaskiptasamninga:  
Eignaskiptayfirlýsing, umfangslítil - allt að 4 íbúðum 41.000 kr.
Eignaskiptayfirlýsing, umfangsmikil 62.500 kr.
Viðaukar/fylgiskjöl með eignaskiptayfirlýsingu 14.800 kr.
Endurtekin yfirferð teikninga vegna eignaskiptayfirlýsingar (fleiri en þrjú skipti) 14.800 kr.
Leiga á garðlöndum 6.400 kr.
Leiga á skólagörðum 6.400 kr.
Leiga af bæjarlandi, afgreiðslugjald vegna umsóknar 14.800 kr.
Leiga af bæjarlandi með lokun á einni akgrein, pr. dag 16.500 kr.
Leiga af bæjarlandi með lokun á götu, pr. dag 27.000 kr.
Leiga á bæjarlandi pr. fermetra á dag í 1-6 daga 120 kr.
Leiga á bæjarlandi pr fermetra á dag í 7 daga + 60 kr.
Leiga á bæjarlandi pr fermetra 3 mánuði eða lengur skv. samkomulagi
Niðurtaka á kantsteini fyrir auka bílastæði 135.000 kr.
Niðurtaka á kantsteini fyrir auka bílastæði ef færa þarf ljósastaur eða rafmagnskassa skv. reikningi

Gjald fyrir nýjan lóðarleigusamning, sem ekki er komin að endurnýjun

14.800 kr.

Gjald fyrir nýtt lóðar- og mæliblað vegna breytinga á deiliskipulagi

86.000 kr.

Gjald fyrir breytingu á lóðar- og mæliblaði 23.300 kr.

Geymslugjald fyrir rafhlaupahjól sem þarf að fjarlægja af bæjarlandi, pr. hjól

2.100 kr.

 

10. gr.

Uppreiknuð gjöld og innheimta gjalda.

Gjöld samkvæmt kafla I í samþykkt þessari miðast við byggingarvísitölu (grunnur 2009) í janúar 2024 sem uppreiknast þriðja hvern mánuð miðað við gildandi byggingarvísitölu að undan­skildu byggingarréttargjaldi skv. 3. gr. samþykktarinnar sem uppreiknast mánaðarlega miðað við gildandi byggingarvísitölu.

Byggingarleyfisgjald er óafturkræft ef byggingarleyfi fellur niður eða er afturkallað.

Gjöldum vegna byggingareftirlits byggingarfulltrúa fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð og má innheimta gjaldfallin gjöld með fjárnámi sbr. 3. mgr. 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010. Vanskil á greiðslu gjalda veitir byggingarfulltrúa jafnframt heimilt til að neita útgáfu vottorða um viðkomandi mannvirki, sbr. 2. mgr. 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.

 

II. KAFLI

Gatnagerðargjald.

11. gr.

Almenn heimild.

Af öllum nýbyggingum og viðbyggingum við eldri byggingar, hvort sem er á eignarlóðum eða leigu­lóðum í Kópavogi, skal greiða gatnagerðargjald til sveitarfélagsins samkvæmt samþykkt þessari. Um gatnagerðargjald fer að öðru leyti eftir lögum um gatnagerðargjald nr. 153/2006.

 

12. gr.

Gjaldskylda og lögveðsréttur.

Lóðarhafi, eða byggingarleyfishafi þar sem það á við, er gjaldskyldur samkvæmt samþykkt þessari og ber ábyrgð á greiðslu gatnagerðargjalds.

Gatnagerðargjald ásamt áföllnum vöxtum og kostnaði er tryggt með lögveðsrétti í viðkomandi fasteign með forkaupsrétti fyrir hverju samningsveði og aðfaraveði í tvö ár frá gjalddaga.

 

13. gr.

Ráðstöfun gatnagerðargjalds.

Gatnagerðargjaldi skal varið til gatnagerðar með tilheyrandi lögnum, yfirborðsfrágangi gatna, stíga og opinna svæða eins og gert er ráð fyrir í skipulagi.

 

14. gr.

Gjaldstofn og álagning gatnagerðargjalds.

Gatnagerðargjald skal innheimta af fasteignum í þéttbýli í samræmi við gildandi aðal- og/eða deili­skipulag á hverjum tíma. Gatnagerðargjald er tvíþætt. Annars vegar er það vegna nýbygginga og hins vegar vegna stækkunar á eldra húsnæði.

Stofn til álagningar gatnagerðargjalds er fermetrafjöldi byggingar á tiltekinni lóð. Gjaldstofninn er ákveðinn á eftirfarandi hátt:

  1. Þegar bæjarstjórn úthlutar eða selur lóð eða byggingarrétt á lóð skal leggja á gatna­gerðar­gjald í samræmi við fermetrafjölda þeirra bygginga sem heimilt er að reisa á viðkomandi lóð samkvæmt gildandi deiliskipulagi.
  2. Verði gatnagerðargjald ekki lagt á skv. a-lið, t.d. ef land er í einkaeign, eða ef veitt er bygg­ingar­leyfi fyrir stærri byggingu en álagning skv. a-lið var upphaflega miðuð við, skal við samþykkt/útgáfu byggingarleyfis leggja á gatnagerðargjald í samræmi við fermetrafjölda þeirrar byggingar sem byggingarleyfi tekur til.

Gatnagerðargjald skal innheimt vegna stækkunar byggingar sem nemur fermetrafjölda stækkunar.

Gatnagerðargjald skal lagt á við samþykkt/útgáfu byggingarleyfis ef reist er ný og stærri bygging í stað annarrar á sömu lóð sem stækkuninni nemur í fermetrum. Gildir þessi regla um byggingar sem samþykkt er byggingarleyfi fyrir allt að fimm árum eftir að leyfi er gefið fyrir niðurrifi byggingar. Að öðrum kosti skal greiða fullt gatnagerðargjald. Ef hin nýja bygging er annarrar tegundar eða til annarrar notkunar en hið eldra húsnæði gilda ákvæði 16. gr. þessarar samþykktar er varða almenna lækkunar­heimild.

Þegar veitt er byggingarleyfi fyrir endurbyggingu, breytingu eða breyttri notkun húsnæðis þannig að hún færist í hærri gjaldflokk, sbr. 15. gr., skal greiða gatnagerðargjald af fermetrafjölda við­komandi húsnæðis sem svarar til mismunar hærri og lægri gjaldflokksins. Lóðarhafi, eða bygg­ingar­leyfis­hafi þar sem það á við, á ekki rétt á endurgreiðslu ef bygging færist í lægri gjaldflokk við slíka breytingu.

 

15. gr.

Útreikningur gatnagerðargjalds.

Af hverjum fermetra húss greiðist ákveðinn hundraðshluti byggingarkostnaðar pr. fermetra í hús­byggingu eins og hann er hverju sinni í vísitöluhúsinu samkvæmt útreikningi Hagstofu Íslands. Hundraðshluti byggingarkostnaðar var . Gjald á fermetra er í heilum krónum og er eins og hér segir fyrir:

Einbýlishús 15,0% 43.330 kr. pr. m²
Rað-, par-, tvíbýlis- og kveðjuhús 12,0% 34.640 kr. pr. m²
Fjölbýlishús, 5 íbúðir eða fleiri 8,4% 24.250 kr. pr. m²
Atvinnuhúsnæði, verslun, þjónusta 10,0% 28.860 kr. pr. m²
Aðrar byggingar 10,0% 28.860 kr. pr. m²

Flatarmál húsa, sem gatnagerðargjald er greitt af, er brúttó flatarmál viðkomandi húsbyggingar í lokunarflokknum A, að undanskildum svölum, sbr. ÍST 50.

Fjárhæðir gatnagerðargjalds breytast 1. dag hvers mánaðar í samræmi við breytingu á byggingar­kostnaði vísitöluhússins samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands á grundvelli laga um Hagstofu Íslands og opinbera skýrslugerð nr. 163/2007.

 

16. gr.

Almenn lækkunarheimild.

Gatnagerðargjald skal lækka af íbúðarhúsnæði þegar svo stendur á sem hér segir:

Af kjallararýmum íbúðarhúsa sem myndast þegar hagkvæmara er að grafa út grunn en fylla hann upp skal greiða 25% af fermetragjaldi viðkomandi húss, enda sé húsrýmið gluggalaust og aðeins gengt í það innan frá.

Af sameiginlegum bifreiðageymslum fyrir þrjár eða fleiri bifreiðar skal greiða 25% af fermetra­gjaldi þeirra húsa sem þær eiga að þjóna.

Af auknu flatarmáli íbúðarhúsa 15 ára og eldri skal ekki greiða gatnagerðargjald, enda nemi stækkunin ekki meiru en 30 m² fyrir hverja íbúð. Tilheyri stækkunin sameign fjöleignarhúss skal meta hana eins og ef um stækkun einnar íbúðar væri að ræða. Við ákvörðun gatnagerðargjalds samkvæmt þessum tölulið skal meta í einu lagi þær stækkanir sem samþykktar hafa verið á sama húsi á næstu 5 árum á undan. Ákvæði þetta gildir einnig fyrir bílskúra, geymsluskúra og aðrar stakar byggingar á lóðum og svalaskýla íbúðarhúsa sem eru allt að 30 m² eða minni. Ef stækkun er meira en 30 m² skal greiða fullt gatnagerðargjald af því sem umfram er.

Verði breytingar á húsnæði eða notkun húsnæðis sem undanþágur samkvæmt 1. og 2. mgr. þessarar greinar, þannig að það uppfylli ekki lengur skilyrði til lækkunar gatnagerðargjalds, skal greiða gatnagerðargjald af því húsnæði samkvæmt gildandi gjaldskrá að teknu tilliti til þess sem áður hefur verið greitt vegna sama húsnæðis.

 

17. gr.

Sérstök lækkunarheimild.

Bæjarstjórn er heimilt að lækka eða fella niður gjöld vegna sérhæfðs félagslegs húsnæðis, svo sem sambýla fyrir fatlaða, þjónustuíbúða fyrir aldraða og félagslegs leiguhúsnæðis enda sé slíkt húsnæði í eigu stofnana, félagasamtaka eða félaga sem ekki eru rekin í ágóðaskyni. Þinglýsa skal kvöð á umrætt húsnæði um að greiða skuli gatnagerðargjald af því ef það fellur af einhverjum ástæðum ekki lengur undir ákvæði þetta.

 

18. gr.

Gjalddagi og eindagi gatnagerðargjalds.

Við innheimtu gatnagerðargjalds eru 70% af álögðu gatnagerðargjaldi samkvæmt hámarks­bygg­ingar­magni á lóð miðað við gildandi deiliskipulag skv. a-lið 14. gr. rukkað og skal greitt við lóðar­úthlutun, sölu lóðar eða byggingarréttar á lóð sem er í eigu Kópavogsbæjar eða hann hefur ráð­stöfunar­rétt á. Það byggingamagn sem samþykkt er umfram áðurnefnd 70% af heildarbygg­ingar­magni á lóð miðað við gildandi deiliskipulag skv. a-lið 14. gr. og skal greiðast við samþykkt byggingar­leyfis.

Gatnagerðargjald sem lagt er á samkvæmt b-lið 14. gr. svo og vegna stækkunar bygginga og nýbygg­inga sem koma í stað eldri bygginga skv. 3. og 4. mgr. sömu greinar skal greiða við sam­þykkt bygg­ingarleyfis.

Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.

 

19. gr.

Innheimta vangreidds gatnagerðargjalds og afturköllun lóðarúthlutunar.

Gatnagerðargjald ber dráttarvexti samkvæmt ákvæðum laga nr. 38/2001 um vexti og verðtrygg­ingu, frá gjalddaga.

Gatnagerðargjald er aðfararhæft án undangengins dóms eða stjórnvaldsúrskurðar.

Ef lóðarhafi greiðir ekki gatnagerðargjald á þeim gjalddögum sem kveðið er á um í úthlutunar- eða byggingarskilmálum er Kópavogsbæ heimilt að afturkalla úthlutun.

Sveitarstjórn skal með 30 daga fyrirvara senda lóðarhafa með sannanlegum hætti viðvörun um hina fyrirhuguðu afturköllun áður en lóðarúthlutun er afturkölluð.

 

20. gr.

Endurgreiðsla gatnagerðargjalds.

Kópavogsbær endurgreiðir gatnagerðargjald innan 30 daga ef lóðarúthlutun er afturkölluð eða ógilt eða lóð skilað. Sama gildir um gatnagerðargjald sem lagt hefur verið á við samþykkt byggingar­leyfis, skv. b-lið 2. mgr. 14. gr. og 3. og 4. mgr. sömu greinar, en í þeim tilvikum skal endurgreiða gatnagerðargjaldið innan 30 daga frá því að byggingarleyfishafi hefur sannanlega krafist greiðslu. Við greiðsludrátt reiknast dráttarvextir á fjárhæðina samkvæmt ákvæðum laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, frá gjalddaga.

 

III. KAFLI

Gjald vegna skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis

21. gr.

Innheimta skal kostnað sem fellur til vegna vinnu við skipulagsmál eða útgáfu framkvæmda­leyfis. Gjaldskráin tekur til erinda sem koma til afgreiðslu hjá skipulagsráði og eftir atvikum á afgreiðslu­fundum skipulagsfulltrúa vegna útgáfu leyfa til framkvæmda, skjalagerðar, yfirlesturs gagna, aug­lýs­inga, kynninga og allrar annarrar umsýslu og þjónustu sem skipulagsdeild Kópavogs­bæjar veitir samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010.

 

22. gr.

Skipulagsdeild Kópavogsbæjar skal innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari fyrir hönd bæjar­stjórnar Kópavogs.

 

23. gr.

Skilgreiningar.

Afgreiðslugjald: Gjald sem greitt er vegna móttöku og yfirferðar erinda vegna aðalskipulags-, deiliskipulagsbreytinga eða útgáfu framkvæmdaleyfis. Gjaldið er óafturkræft þó svo að erindinu sé hafnað eða það dregið til baka.

Umsýslukostnaður: Kostnaður Kópavogsbæjar vegna afgreiðslu erindis, kynningar, birtingar auglýs­inga sem og annar kostnaður vegna umsýslu erindis.

 

24. gr.

Almenn gjöld.

Innheimta skal afgreiðslugjald vegna erindis um framkvæmdaleyfi, byggingarleyfi, deili­skipulag og aðalskipulag. Afgreiðslugjaldið skal ákveða fyrir hverja tegund erindis og skal taka mið af þeirri vinnu sem almennt felst í slíku erindi. Sé þörf á að vinna skipulagsáætlun eða breytingar á henni vegna leyfisskyldra framkvæmda innheimtir bæjarstjórn gjald fyrir skipulagsvinnu sem nauðsynleg er vegna þeirrar framkvæmdar.

Afgreiðslugjald 14.800 kr.
Gjald vegna vinnu skipulagsfulltrúa við gerð lýsingar skipulagsáætlunar og/eða yfirlesturs og yfirferðar á lýsingu sem og önnur umsýsla 213.000 kr.
Umsýslugjald vegna fyrirspurna 21.000 kr.

 

25. gr.

Aðalskipulag – breyting skv. 1. og 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Afgreiðslugjald 14.800 kr.
Gerð breytingar- og kynningaruppdráttar skv. 1. mgr. 36 gr. 353.000 kr.
Kostnaður vegna óverulegra breytinga skv. 2. mgr. 36 gr. 221.000 kr.

Innheimta skal útlagðan kostnað vegna auglýsinga skipulagsáætlana skv. reikningi

 

26. gr.

Deiliskipulag – nýtt eða verulegar breytingar
skv. 1. mgr. 41. og 43. gr. skipulagslaga 123/2010.

Afgreiðslugjald 14.800 kr.
Gerð deiliskipulags- og kynningaruppdráttar skv. reikningi
Umsýslukostnaður vegna málsmeðferðar 278.000 kr.

Innheimta skal útlagðan kostnað vegna auglýsinga skipulagsáætlana skv. reikningi.

 

27. gr.

Deiliskipulag – óverulegar breytingar
skv. 2. og 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Afgreiðslugjald 14.800 kr.
Gerð deiliskipulags- og kynningaruppdráttar 353.000 kr.
Umsýslukostnaður vegna málsmeðferðar skv. 2. mgr. 85.000 kr.
Umsýslukostnaður vegna málsmeðferðar skv. 3 mgr. 70.000 kr.

Innheimta skal útlagðan kostnað vegna auglýsinga skipulagsáætlana skv. reikningi.

 

28. gr.

Grenndarkynning á umsókn um byggingarleyfi
skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Afgreiðslugjald 14.800 kr.
Umsýslukostnaður vegna málsmeðferðar 85.000 kr.

 

29. gr.

Lækkunarheimild vegna umfangslítilla skipulagsverkefna.

Heimilt er að veita afslátt af gjöldum skv. 24.-28. gr. samþykktar þessarar ef verkefni eru umfangs­lítil og kostnaður óverulegur. Afgreiðslugjald er þó undanskilið þessu ákvæði. Afsláttur getur þó aldrei orðið meira en 60% af gjaldi samkvæmt gildandi gjaldskrá.

 

30. gr.

Framkvæmdaleyfi.

Afgreiðslugjald 14.800 kr.
Útgáfa framkvæmdaleyfis skv. 13. gr. skipulagslaga 92.000 kr.
Útgáfa framkvæmdaleyfis skv. 14. gr. skipulagslaga 216.000 kr.

Innheimta skal útlagðan kostnað vegna auglýsinga framkvæmdaleyfis skv. reikningi.

 

31. gr.

Gjalddagar og greiðslur.

Gjöld sem innheimt eru samkvæmt III. kafla þessarar samþykktar skulu aldrei nema hærri fjárhæð en sem nemur kostnaði við veitta þjónustu.

Afgreiðslugjald skv. kafla þessum fellur í gjalddaga við móttöku erindis og skal greitt áður en fjallað er um erindið.

Umsýslugjald vegna breytinga á aðalskipulagi eða deiliskipulagi skal greitt áður en tillaga er auglýst eða grenndarkynnt í kjölfarið á samþykkt þess efnis.

Gjald vegna útgáfu framkvæmdaleyfis skal greitt við samþykkt framkvæmdaleyfis.

Gjöld samkvæmt III. kafla samþykktar þessarar miðast við byggingarvísitölu (grunnur 2009) í janúar 2024 sem uppreiknast þriðja hvern mánuð miðað við gildandi byggingarvísitölu.

 

IV. KAFLI

Samþykkt og gildistaka.

32. gr.

Samþykkt þessi er sett með heimild í 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, 12. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006 og 11. gr. reglugerðar um sama efni nr. 543/1996, 10. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004 og 15. gr. laga um upp­byggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009.

Samþykktin var samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs 28. nóvember 2023 og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um gatnagerðargjald, byggingarleyfisgjald, stofngjöld og önnur þjónustugjöld tengd skipulagi og framkvæmdum í Kópavogsbæ nr. 1685/2022.

 

Kópavogi, 12. desember 2023.

 

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 28. desember 2023