1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
|
1.9 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/1795 frá 24. júní 2024 um breytingu á ákvörðun 2011/235/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum einstaklingum og rekstrareiningum í ljósi ástandsins í Íran, fylgiskjal 1.9. |
|
2.9 |
Reglugerð ráðsins (ESB) 2024/1796 frá 24. júní 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) 359/2011 um þvingunaraðgerðir sem beint er gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Íran, fylgiskjal 2.9. |
|
5.2 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/1970 frá 15. júlí 2024 um breytingu á ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/1532 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu, fylgiskjal 5.2. |
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 2. september 2024.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|