1. gr. Um reikningsskil og ársreikning Seðlabanka Íslands gilda eftir því sem við getur átt ákvæði laga nr. 144/1994 um ársreikninga, laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, laga nr. 145/1994 um bókhald svo og góðar bókhalds- og reikningsskilavenjur. 2. gr. Framlag í ríkissjóð sbr. 34. gr. laga nr. 36/2001 skal reikna af hagnaði ársins samkvæmt rekstrarreikningi að frádregnum reiknuðum tekjum og gjöldum vegna breytinga á gengi íslensku krónunnar. 3. gr. Reglur þessar, sem settar eru á grundvelli 32. gr. laga um Seðlabanka Íslands, nr. 36/2001, öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglur um sama efni nr. 896/2002. Forsætisráðuneytinu, 6. desember 2005. Halldór Ásgrímsson. Bolli Þór Bollason. |