Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 10/2023

Nr. 10/2023 3. janúar 2023

AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um frest til að skila umsókn um lækkun á fyrirframgreiðslu þinggjalda á árinu 2023.

  1. Frestur til að skila umsóknum um lækkun á fyrirframgreiðslu ársins 2023, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 1424/2022, er til 31. maí 2023 vegna lögaðila. Umsóknir ásamt gögnum skulu því í síðasta lagi hafa verið sendar rafrænt á netfangið [email protected] fyrir lok umsóknarfrests.
  2. Forsendur fyrir lækkun fyrirframgreiðslunnar eru þær að skatt- eða gjaldstofnar vegna tekju­ársins 2022 séu a.m.k. 25% lægri en þeir stofnar sem fyrirframgreiðslan ákvarðast af, þ.e. á tekju­árinu 2021, og að álögð gjöld 2023 muni af þeim sökum að lágmarki verða 100.000 kr. lægri en var við álagningu 2022.
  3. Umsækjanda ber að sýna fram á forsendur fyrir lækkun á fyrirframgreiðslu með framlagningu skattframtals 2023 ásamt lögboðnum fylgiskjölum, þ.m.t. ársreikningi. Hafi umsækjandi skilað rafrænu framtali 2023 ásamt fylgigögnum er nægilegt að vísa til þess í umsókninni.
  4. Auglýsing þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1424/2022 og tekur þegar gildi.

 

Reykjavík, 3. janúar 2023.

 

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.


B deild - Útgáfud.: 17. janúar 2023