Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 136/2024

Nr. 136/2024 22. janúar 2024

AUGLÝSING
um gjaldskrá vegna stöðvunarbrota í Suðurnesjabæ.

1. gr.

Aukastöðugjald vegna brota á reglum um notkun stöðureita, sbr. 2. mgr. 86 gr. umferðarlaga nr. 77/2019, sbr. f-lið 1. mgr. 109. gr. sömu laga, skal vera 4.500 kr. Veittur er 1.100 kr. afsláttur ef greitt er í bankastofnun eða heimabanka innan þriggja virkra daga frá álagningu gjaldsins.

 

2. gr.

Stöðvunarbrotagjald vegna annarra stöðvunarbrota, sbr. a–e-lið 1. mgr. 109. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, að undanskildum a-lið 2. mgr. 29. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 109. gr. skal vera 15.000 kr. Veittur er 1.100 kr. afsláttur ef greitt er í bankastofnun eða heimabanka innan þriggja virkra daga frá álagningu gjaldsins.

 

3. gr.

Stöðvunarbrotagjald vegna annarra stöðvunarbrota, sbr. a-e-lið 1. mgr. 109. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, að undanskildum a-lið 2. mgr. 29. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 109. gr. skal þó vera 25.000 kr. þegar gjaldið er lagt á vegna hópbifreiðar. Veittur er 1.100 kr. afsláttur ef greitt er í bankastofnun eða heimabanka innan þriggja virkra daga frá álagningu gjaldsins.

 

4. gr.

Stöðvunarbrotagjald vegna a-liðar 2. mgr. 29. gr. sbr. b-lið 1. mgr. 109. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 (bílastæði fatlaðra) skal vera 25.000 kr. Veittur er 1.100 kr. afsláttur ef greitt er í banka­stofnun eða heimabanka innan þriggja virkra daga frá álagningu gjaldsins.

 

5. gr.

Frestur til að andmæla stöðvunarbrotagjöldum er 28 dagar frá dagsetningu álagningar.

 

6. gr.

Séu gjöldin greidd innan 14 daga frá álagningu gilda ofangreindar fjárhæðir, en hækka eftir það um 50%, sbr. 5. mgr. 109. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Sé gjald enn ógreitt þegar 28 dagar eru liðnir frá álagningu, hækkar það um 100% frá upphaflegu gjaldi, án tillits til staðgreiðsluafsláttar og undangenginnar 50% hækkunar eftir 14 daga, sbr. 6. mgr. 109. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

 

7. gr.

Gjaldskrá þessi sem bæjarstjórn Suðurnesjabæjar hefur samþykkt staðfestist hér með samkvæmt 5. mgr. 109. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, sbr. reglur um álagningu og innheimtu gjalds vegna stöðvunarbrota nr. 104/1988 og öðlast gildi við birtingu.

Jafnframt fellur úr gildi auglýsing um gjaldskrá vegna stöðvunarbrota í Sandgerðisbæ nr. 957/2013.

 

Innviðaráðuneytinu, 22. janúar 2024.

 

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Hermann Sæmundsson.


B deild - Útgáfud.: 5. febrúar 2024