1. gr.
Reglugerð þessi gildir um úthlutun viðbótaraflaheimilda í makríl samkvæmt ákvæði 10. gr. b. í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.
2. gr.
Heimilt er að úthluta allt að 4.000 lestum af viðbótaraflaheimildum í makríl ár hvert til skipa í B-flokki gegn greiðslu gjalds. Úthluta skal allt að 35 lestum í senn. Eftir 15. september skal úthluta til skipa í A-flokki því sem eftir er gegn greiðslu gjalds.
3. gr.
Úthlutun viðbótaraflaheimilda samkvæmt þessari reglugerð er bundin því skilyrði að skip hafi veitt 80% af áður úthlutuðum viðbótaraflaheimildum.
4. gr.
Óheimilt er að framselja aflaheimildir sem úthlutað er samkvæmt þessari reglugerð. Heimilt er að flytja allt að 10% af úthlutuðum viðbótaraflaheimildum skips yfir á næsta ár.
5. gr.
Fiskistofa annast úthlutun viðbótaraflaheimilda gegn greiðslu gjalds á grundvelli umsókna og skal vikulega úthluta aflaheimildum á grundvelli umsókna sem borist hafa undanfarandi viku.
Ef umsóknir um viðbótaraflaheimildir eru umfram þær aflaheimildir sem til ráðstöfunar eru skal Fiskistofa skipta því sem til ráðstöfunar er jafnt á milli umsækjenda, enda hafi umsækjandi ekki sótt um minna magn en því nemur. Verð á viðbótaraflaheimildum í makríl skal nema sömu fjárhæð og veiðigjald fyrir makríl og skal það greitt Fiskistofu fyrir úthlutun. Hafi gjald ekki verið greitt í síðasta lagi á öðrum virkum degi úthlutunarviku fellur réttur útgerðar til úthlutunar á grundvelli umsóknarinnar niður.
Á heimasíðu Fiskistofu skal vikulega birta upplýsingar um magn makríls sem til ráðstöfunar er.
Skip í A-flokki skulu sækja um sinn hlut af viðbótaraflaheimildum til Fiskistofu fyrir 10. september ár hvert og skal Fiskistofa úthluta því sem eftir er jafnt á milli umsækjenda 16. september ár hvert.
6. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 10. gr. b laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 762/2018 um ráðstöfun 2.000 tonna viðbótaraflaheimilda í makríl á árinu 2018.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. júní 2019.
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Jóhann Guðmundsson.
|