1. gr.
Við reglugerðina bætist bráðabirgðaákvæði, svohljóðandi:
Til 30. september 2022 er heimilt að greiða styrk vegna útlagðs kostnaðar við gistingar á hóteli, orlofsíbúð, gistiheimili eða heimagistingu, hjá þeim sem hafa til þess leyfi, til einstaklinga sem þurfa heilsu sinnar vegna að dvelja fjarri heimili sínu vegna rannsókna eða meðferða sem veitt er á sjúkrahúsi, skv. 4. tl. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 40/2007 um heilbrigðisþjónustu þar sem ekki er starfrækt sjúkrahótel.
Skilyrði fyrir heimildinni er að aflað sé samþykkis fyrirfram hjá Sjúkratryggingum Íslands og að:
- sýnt sé fram á með staðfestingu frá þeim aðilum sem Sjúkratryggingar Íslands hafa samið við um niðurgreiðslu, að gisting sé ekki í boði tiltekna dagsetningu, eða
- herbergi skv. samningum um gistiþjónustu henti ekki einstaklingnum vegna heilsu hans.
Greiddur er styrkur sem nemur 90% af raunkostnaði skv. reikningi, þó að hámarki kr. 25.000 fyrir hvern sólarhring.
Skila skal inn reikningi til Sjúkratrygginga Íslands fyrir gistingu ásamt staðfestingu frá sjúkrahúsinu um veitta meðferð og nauðsynlegan dvalartíma í gistingu.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 8. tölul. 1. mgr. og 6. mgr. 29. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 15. ágúst 2022.
Willum Þór Þórsson.
|