Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 808/2024

Nr. 808/2024 8. júlí 2024

AUGLÝSING
um (6.) staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2023/2024.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 852/2023, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2023/2024, staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftir­farandi sveitarfélögum:

 

Skagafjörður (breyting á almennum skilyrðum, vinnsluskylda).

Ákvæði reglugerðar nr. 852/2023 gilda um úthlutun byggðakvóta Sauðárkróks og Hofsóss með eftirfarandi breytingum:

  a) Nýr málsl. bætist við 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar svohljóðandi: Hámarksúthlutun fiski­skipa af því aflamarki sem fallið hefur innan viðkomandi byggðarlags verður 24 þorsk­ígildistonn á skip.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkom­andi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi sveitarfélags á tímabilinu 1. september 2022 til 31. ágúst 2023.
  c) Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli sem er landað er í sveitar­félagi úr fiskiskipum sem ekki eru skráð innan viðkomandi sveitarfélags, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.
  d) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tíma­bilinu frá 1. september 2023 til 31. ágúst 2024.

 

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 8. júlí 2024.

 

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 9. júlí 2024