1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Mið-Afríkulýðveldið nr. 760/2014, ásamt síðari breytingum, í réttri númeraröð:
|
1.6 |
Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/2459 frá 23. desember 2015 um framkvæmd ákvörðunar 2013/798/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Mið-Afríkulýðveldinu, sbr. fylgiskjal 1.6. |
|
1.7 |
Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/360 frá 11. mars 2016 um framkvæmd ákvörðunar 2013/798/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Mið-Afríkulýðveldinu, sbr. fylgiskjal 1.7. |
|
1.8 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/564 frá 11. apríl 2016 um breytingu á ákvörðun 2013/798/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Mið-Afríkulýðveldinu, sbr. fylgiskjal 1.8. |
|
1.9 |
Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/1446 frá 31. ágúst 2016 um framkvæmd ákvörðunar 2013/798/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Mið-Afríkulýðveldinu, sbr. fylgiskjal 1.9. |
|
2.6 |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/2454 frá 23. desember 2015 um framkvæmd 1. og 3. mgr. 17. gr. reglugerðar nr. 224/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Mið-Afríkulýðveldinu, sbr. fylgiskjal 2.6. |
|
2.7 |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2016/354 frá 11. mars 2016 um framkvæmd 1. mgr. 17. gr. reglugerðar nr. 224/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Mið-Afríkulýðveldinu, sbr. fylgiskjal 2.7. |
|
2.8 |
Reglugerð ráðsins (ESB) 2016/555 frá 11. apríl 2016 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 224/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Mið-Afríkulýðveldinu, sbr. fylgiskjal 2.8. |
|
2.9 |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2016/1442 frá 31. ágúst 2016 um framkvæmd 1. og 3. mgr. 17. gr. reglugerðar nr. 224/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Mið-Afríkulýðveldinu, sbr. fylgiskjal 2.9. |
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 22. febrúar 2017.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Stefán Haukur Jóhannesson.
Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|