Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 431/2013

Nr. 431/2013 3. maí 2013
REGLUGERÐ
um stjórn veiða á djúpsjávartegundum á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC).

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til veiða íslenskra skipa á djúpsjávartegundum á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) utan lögsögu ríkja.

2. gr.

Íslenskum fiskiskipum er óheimilt að stunda veiðar skv. 1. gr. án sérstaks leyfis Fiski­stofu.

Fiskiskip skulu með sérstakri tilkynningu til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Land­helgis­gæslu Íslands og Fiskistofu, hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin, með 24 tíma fyrirvara tilkynna þegar veiðar skv. veiðileyfi eru hafnar og tilkynna innan 12 tíma hvenær þeim lýkur. Eftirlitsstöðin telur saman sóknardaga íslenskra skipa. Samanlagður fjöldi sóknardaga íslenskra skipa á hverju almanaksári er 29 og skal Fiskistofa afturkalla öll útgefin leyfi skv. 1. mgr. þegar þeim fjölda sóknardaga er náð.

3. gr.

Við veiðar skv. 1. gr. skulu fiskiskip búin fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til Eftirlitsstöðvarinnar, um staðsetningu skipsins á klukkustundar fresti.

Óheimilt er að halda úr höfn til veiða fyrr en starfsmenn Eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest til skipstjóra að eftirlitsbúnaðurinn starfi eðlilega.

Ef eftirlitsbúnaðurinn bilar, skal gert við hann við komu í næstu höfn. Þar til búnaðinum verður komið í lag, skal senda á annan hátt upplýsingar um staðsetningu skipsins á 6 klukkustunda fresti til Eftirlitsstöðvarinnar.

4. gr.

Íslenskum skipum, sem ekki hafa fengið leyfi til veiða skv. 1. mgr. 2. gr., er óheimilt, á samningssvæði NEAFC utan lögsögu ríkja, að veiða eftirtaldar djúpsjávartegundir:

1. Gjölnir

Alepocehalus bairdii

Baird’s smooth head

2. Gjölnisætt

Alepocephalus rostratus

Risso’s smooth head

3. Fjólumóri

Antimora rostrata

Blue antimora (Blue hake)

4. Stinglax

Aphanopus carbo

Black scabbard fish

5. Mattaháfur (Gíslaháfur o.fl.)

Apristuris spp.

Iceland catshark

6. Gulllax/Stóri gulllax

Argentina silus

Greater silver smelt

7. Serkur (Rauðserkur/Fagurserkur)

Beryx spp.

Alfonsinos

8. Keila

Brosme brosme

Tusk

9. Kornháfur

Centrophorus granulosus

Gulper shark

10. Rauðháfur

Centrophorus squamosus

Leafscale gulper shark

11. Svartháfur

Centroscyllium fabricii

Black dogfish

12. Gljáháfur

Centroscymnus coelolepis

Portuguese dogfish

13. Þorsteinsháfur

Centroscymnus crepidater

Longnose velvet dogfish

14. Tröllakrabbi

Chacon (Geyron) affinis

Deep-water red crab

15. Geirnyt

Chimaera monstrosa

Rabbit fish (Rattail)

16. Kragaháfur

Chlamydoselachus anguineus

Frilled shark

17. Hafáll

Conger conger

Conger eel

18. Slétti langhali

Coryphaenoides rupestris

Roundnose grenadier

19. Skarðaháfur

Dalatias licha

Kitefin shark

20. Flatnefur

Deania calcea

Birdbeak dogfish

21. Glyrnir

Epigonus telescopus

Black (Deep-water) cardinal fish

22. Dökkháfur

Etmopterus princeps

Greater lantern shark

23. Loðháfur

Etmopterus spinax

Velvet belly

24. Hringaháfur

Galeus melastomus

Blackmouth dogfish

25. Jensensháfur

Galeus murinus

Mouse catshark

26. Svartgóma

Helicolenus dactylopterus

Bluemouth (Blue mouth redfish)

27. Brandháfur

Hexanchus griseus

Bluntnose six-gilled shark

28. Búrfiskur

Hoplostethus atlanticus

Orange roughy

29. Búrfiskbróðir

Hoplostethus mediterraneus

Silver roughy (Pink)

30. Digurnefur

Hydrolagus mirabilis

Large-eyed rabbit fish (Ratfish)

31. Marbendill/Atlants-marbendill

Lepidopus caudatus

Silver scabbard fish (Cutless fish)

32. Dílamjóri

Lycodesesmarkii

Eelpout

33. Snarphali

Marcrourus berglax

Roughhead grenadier (Rough rattail)

34. Blálanga

Molva dypterigia

Blueling

35. Langa

Molva molva

Ling

36. Móra

Mora moro

Common mora

37. Kýrháfur

Oxynotus paradoxus

Sailfin roughshark (Sharpback shark)

38. Kólguflekkur

Pagellus bogaraveo

Red (blackspot) seabream

39. Litla brosma

Phycis spp.

Forkbeards

40. Blákarpi

Polyprion americanus

Wreckfish

41. Skjótta skata

Raja hyperborean

Arctic skate

42. Pólskata

Rajafyllae

Round skate

43. Þrændaskata

Rajanidarosiensus

Norwegian skate

44. Grálúða

Rheinhardtius hippoglossoides

Greenland halibut

45. Trjónufiskur

Rhinochimaera atlantica

Straightnose rabbitfish

46. Ekki til íslenskt heiti, en náskyld tegund er Færeyjaháfur

Scymnodon ringens

Knifetooth dogfish

47. Litli karfi

Sebastes viviparus

Small redfish (Norway haddock)

48. Hákarl

Somniosus microcephalus

Greenland shark

49. Miðjarðarhafskarfi

Trachyscorpia cristulata

Spiny (Deep-sea) Scorpionfish

Öllum íslenskum skipum er óheimilt, á samningssvæði NEAFC utan lögsögu ríkja, að veiða eftirtaldar djúpsjávartegundir:

1. Mattaháfur (Gíslaháfur o.fl.)

Apristuris spp.

Iceland catshark

2. Kornháfur

Centrophorus granulosus

Gulper shark

3. Rauðháfur

Centrophorus squamosus

Leafscale gulper shark

4. Svartháfur

Centroscyllium fabricii

Black dogfish

5. Gljáháfur

Centroscymnus coelolepis

Portuguese dogfish

6. Þorsteinsháfur

Centroscymnus crepidater

Longnose velvet dogfish

7. Kragaháfur

Chlamydoselachus anguineus

Frilled shark

8. Skarðaháfur

Dalatias licha

Kitefin shark

9. Flatnefur

Deania calcea

Birdbeak dogfish

10. Dökkháfur

Etmopterus princeps

Greater lantern shark

11. Loðháfur

Etmopterus spinax

Velvet belly

12. Hringaháfur

Galeus melastomus

Blackmouth dogfish

13. Jensensháfur

Galeus murinus

Mouse catshark

14. Brandháfur

Hexanchus griseus

Bluntnose six-gilled shark

15. Kýrháfur

Oxynotus paradoxus

Sailfin roughshark (Sharpback shark)

16. Ekki til íslenskt heiti, en náskyld tegund er Færeyjaháfur

Scymnodon ringens

Knifetooth dogfish

17. Hákarl

Somniosus microcephalus

Greenland shark

18. Búrfiskur

Hoplostethus atlanticus

Orange roughy

19. Beinhákarl

Cetorhinus maximus

Basking shark

20. Hámeri

Lamna nasus

Porbeagle

21. Háfur

Squalus acanthias

Spurdog

5. gr.

Frá 15. febrúar til 15. apríl eru allar veiðar óheimilar á Franshól, sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:

  1. 60°58’76 N - 27°27’32 V
  2. 60°56’02 N - 27°31’16 V
  3. 60°59’76 N - 27°43’48 V
  4. 61°03’00 N - 27°39’41 V

6. gr.

Netaveiðar eru óheimilar á meira dýpi en 200 metrar.

7. gr.

Fiskiskipum sem hafa leyfi skv. 1. mgr. 2. gr. og jafnframt leyfi til að stunda rækjuveiðar í Barentshafi (ICES svæði Ia), sbr. III. kafla reglugerðar um stjórn veiða á samn­ings­svæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) utan lögsögu ríkja, er heimilt að nota yfirpoka á seiðaskilju við rækjuveiðarnar.

8. gr.

Um tilkynningar gilda ákvæði reglugerðar nr. 1221/2008, með síðari breytingum, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC).

9. gr.

Stundi skip veiðar skv. þessari reglugerð og almennar togveiðar í lögsögu Íslands í sömu veiðiferð skal halda afla sem þannig fæst aðgreindum frá öðrum afla um borð í veiðiskipi og skal hann veginn og skráður sérstaklega við löndun. Um vigtun afla fer eftir ákvæðum gildandi reglna um vigtun sjávarafla.

10. gr.

Brot á reglugerð þessari og ákvæðum leyfisbréfa gefnum út á grundvelli hennar, skulu varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lög­sögu Íslands, með síðari breytingum, lögum nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fisk­veiða, með síðari breytingum og lögum nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytja­stofna sjávar, með síðari breytingum.

11. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, lögum nr. 116/2006 og lögum nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum, um stjórn fiskveiða, og öðlast þegar gildi.

Reglugerð þessi er sett til samræmis við skuldbindingar Íslands vegna aðildar að Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndinni (NEAFC).

Við gildistöku þessarar reglugerðar fellur úr gildi reglugerð nr. 471/2012 um (6.) breyt­ingu á reglugerð nr. 1221/2008, um veiðieftirlit á samningssvæði NEAFC.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. maí 2013.

F. h. r.

Ingvi Már Pálsson.

Kristján Freyr Helgason.

B deild - Útgáfud.: 7. maí 2013