Tilkynningaskyldir aðilar, sbr. 4. og 5. mgr. 91. gr. a laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skulu innan mánaðar frá lokum reikningsárs á árinu 2020 tilkynna ríkisskattstjóra hvaða félag í samstæðunni skili ríki-fyrir-ríki skýrslu um skattskil og um heimilisfestarríki þess félags. Jafnframt skal tilgreina sérstaklega ef hið tilkynningarskylda félag er móðurfélag heildarsamstæðunnar eða staðgöngufélag móðurfélags.
Tilkynningarskyldir aðilar skulu vegna reikningsárs þess sem lauk á árinu 2019 skila slíkri tilkynningu eigi síðar en 31. janúar 2020.
Tilkynningu samkvæmt auglýsingu þessari skal skilað með því að senda eyðublaðið RSK 4.31 á netfangið milliverdlagning@rsk.is.
Allar fyrirspurnir vegna framangreindra skila má senda á netfangið milliverdlagning@rsk.is.
Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt 91. gr. a laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.
Reykjavík, 18. desember 2019.
Snorri Olsen ríkisskattstjóri.
|